Jájá
Helgin í Köben var æði. Vottaði örlítið fyrir þynnku í lestinni á leiðinni á hovedbanegården. Hún hvarf hins vegar eins og dögg fyrir sólu þegar ég sá hottintottana standa á brautarpallinum með kassa af bjór. Svo fórum við heim til Soffíu og Finns. Talað og fíflast þangað til leiðin lá niður í bæ seinna um kvöldið. Arnar og Finnur G þurftu að yfirgefa bæinn vegna of mikillar alkóhólsinntöku um 2 leytið en ég og Finnur Þór máluðum bæinn rauðann fram eftir nóttu. Enda alvega búin á því þegar við loksins stigum inn í næturstrætóinn. Sofnuðum og keyrðum af okkur þá stoppistöð sem við höfðum ætlað okkur út. Það var allt í lagi. Ganga fyrir svefninn er víst mjög holl.
Tívolí allan sunnudaginn þrátt fyrir lélega maga. Gott að koma heim í eigin rúm. Læt nokkrar myndir fylgja með hérna fyrir neðan.
Annars er ég glaður blogger. Gekk held ég ok miðað við aðstæður þarna á föstudaginn. Magakveisa, próf og föstudagurinn þrettándi. Tja!
Annars hef ég sofið eins og björn síðustu daga. Veit ekki hvaðan þessi þreyta kemur. Hún verður hins vegar að hverfa fyrir næstu helgi.. Fyrir morgundaginn því ég hef engan tíma til að sofa næstu daga.
Myndir og tata..



posted by xxx @ 22:32
