Stutt og laggott
Jæja, þá er próflestrinum lokið og milli kl 9 og 14 á morgun mun ég sitja sveitt í prófi. Svo er planið að kíkja á fredagsbar og út með stelpunum að borða. Hugsa að við kíkjum í nokkra kokteila á Bertelsen á eftir.
Svo að vakna á laugardagsmorguninn og taka lestina til Köben og hitta Finnana mína. Hef ekki séð þá í háa herrans tíð. Hlakka voða mikið til!
Nú er bara að vona að ég verði glaður blogger næst þegar ég blogga. Eftir gott próf og góða helgi :)
Hugsið endilega fallega til mína á morgun. Ekki veitir af.
Hugs... posted by xxx @ 20:48
