Andvaka
Hræðilegt þegar síminn hringir eftir að maður er floginn inn í draumalandið. Nákvæmlega þetta eina skipti í mánuði sem síminn er nota bene EKKI á SILENT.
Og enn hræðilegra að geta ekki sofnað aftur. Alveg hræðilegt, jájá. Ákvað að nýta andvökuna til að koma með smá uppdeit um sjálfa mig. Hí. Af því að ég er svo áhugaverð. Þið vitið.
Nú það var þarna helgin sem Huldan mín og Styrmir elskan komu í heimsókn. Ótrúlega gaman. Loksins. Versluðum, fórum út að borða, fengum okkur bjór (og mikið af honum), pool, stúdentabarinn, party og læknadjamm. Í staðinn göldruðu þau fram besta brunch hlaðborð í heimi. Nei ekki slæmt að Styrmir er kokkur (sko yfirkokkur).. á hótel Holti. Svo huggulegt. Ætli þetta hafi ekki verið hápunkturinn síðan ég bloggaði síðast.
Svo minna skemmtilegir hlutir. Var síngúl þarna eitt kvöld. Gekk ógeðslega illa í fáránlegum prófum. Mér finnst heimsspeki áhugaverð en ég er sko enginn heimsspekingur sjálf, svo mikið er víst. Það er allt í lagi.
Svolítil heimþrá farin að láta kræla á sér. Búin að panta miða heim um jólin og leggja plön. Jólafrí heima með fjölskyldunni fyrir norðan. Áramótin í góðra vina hópi á Meistaravöllum í borg bleytunnar.Það er skemmtilegur hlutur!
Einhver partý þarna inn á milli. Tónlist niður í bæ. Vaktir. Anorexíu sjúklingar. Manískir sjúklingar. Eignaðist bróðir. Og kannski fleiri systkin. Nú og franska vinkonu. Sjónvarpið. Afmæli. Sofa. Lítið sem ekkert. En samt eitthvað.
Lífið mitt-líf námsmannsins. Rótleysi. Þessa dagana.
Er að fara til London á morgun. Baby. posted by xxx @ 00:34
