Hitt og þetta
Held að mér hafi tekist að klára 9.annar verkefnið mitt í dag. Kemst að því á morgun þegar ég les það yfir í síðasta skipti. Svo er bara að verja það og vona að köllunum finnist ég gáfuð.
Annars er dagurinn í dag búinn að vera einstaklega fallegur. Sól og heitt, heitt, heitt. Í dag hefði mamma líka orðið 46 ára. Fallegur dagur fyrir hana. Hún á það líka skilið. Hef saknað hennar óvenju mikið undanfarið. Held að það sé vegna þess að það er farið að styttast í það að ég fari til Íslands. Ég hlakka ótrúlega mikið til þess að eyða sumrinu á Íslandi. En ég finn mun meira fyrir því að mig vanti hana í lífið mitt þegar ég er þar. Það er líklega eðlilegt. Það er skapast alltaf tómarúm þegar maður missir manneskju. Sem aldrei hverfur alveg. Þó að maður reyni að fylla upp í það eins og hægt er. En hvað um það. Fallegur dagur, fyrir fallega persónu!
Álaborg á morgun- Er á ortopæd þessa dagana. Ortopæd er ekki ég. Ég er ekki ortopæd. Mér finnst mjaðma og hnéaðgerðir ekki áhugaverðar. Skadestuen er áhugaverð- en þá er það upptalið. Gott að það eru bara 3 vikur eftir. Gott að komast í sumarfrí.
Góða nótt :) posted by xxx @ 21:05
