Vika þangað til ég fer út í skaflana í Danmörku. Það verður gaman, hef ekki fengið það mikinn snjó hérna meginn. Helgin var fín! Hörkudjamm á föstudeginum, Skellti mér í Party&co með Krissa, Huldu, Arnari,Rúnari,Nonna, Frey, Gauja, Tryggva og Sigga Megas! Mitt lið rústaði hinum,... já eða það sem eftir var af liðinu okkar. Hm, ég stóð fyrir framan spegilinn að mála mig og aðrir voru orðnir það fullir að ég held að þeir hafi ekki vitað almennilega hvar þeir voru. En já, Krissi, Rúnar og Siggi sáu um lokasprettinn. Nú svo lá leiðin á Sólon (eða hvað sá staður heitir núna.. má heita). Fórum reyndar á Gaukinn fyrst þar sem bróðir Helga (Iron Helgi) í hljómsveitinni Smack var að spila. Skil nú ekki alveg afhverju ég álpaðist þangað inn. Gaukurinn er great staður. Yfirleitt ágætis sveitaballstemming þar. En þetta föstudagskvöld voru 6 hræður. Wonder why. Það var góð stemming á Sólon. Er ekki alveg að fíla alla tónlistina sem er spiluð þar. En maður gat dillað sér eitthvað.
Á laugardeginum höfðum við Krissi, Hulda og Arnar síðbúinn kvöldverð, kl 22. Grillaðar lambalærisneiðar -já og ég hafði mikið fyrir þeim! Keyrði búðanna á milli til þess eins að finna réttu sneiðarnar. Og rauðvín með. Binna mín frá Bandaríkjunum og Stíní vinkona hennar redduðu fyrir okkur miðum á ball á Broadway, Írafár og einhverjir. Hulda var þreytt eftir föstudagskvöldið, ekki furða þar sem snótin hafði kannski drukkið aðeins meira en góðu hófi gegnir... Kannski! Ég er svo sem ekki dómbærasta manneskjan á það. En við þrjú skelltum okkur með þeim á ball og Finnur og Helgi með. Það var mjög gaman. Ég vaknaði með hálsrýg daginn efitir. Fíla rokkið allt of mikið. Hmhm! Ég tróð mér í þáttinn Djúpu laugina (eins æðislegur og hann er).... vona að þeir klippi mig út. Nú, svo eignaðist ég bestu vinkonu. Hún heitir Sigrún og býr í Svíþjóð. Ég dró hana með mér um alla Reykjavík. Ég ákvað meira að segja að heimsækja hana þegar ég kæmi til Danmerkur.. taka lestina, hélt að það væri nú minnsta mál í heimi. !! Ég hef símanúmerið hennar!! Það fannst mér þá allavega! Krissi var orðinn leiður á mér- hann var edrú. Fór heim um 6 og upplifði líka þennan pottþétta þynnkudag á sunnudeginum. Þetta djamm dugir mér í bili. Næst djamma ég á danskri grund.
Hvernig í andskotanum setur maður inn myndir. Hata tölvur! posted by xxx @ 00:10
