Fyllerísröfl miðaldra konu
Ég átti undarlegt samtal hérna í kvöld/nótt á tjaldsvæðinu
G=tjadstæðistgestur
G: Bank, bank (á skrifstofudyrnar hjá mér)
Ég: Já, er það eitthvað mikilvægt?
G: Hefur einhver rætt við þig um klósettin hérna á svæðinu (..miðaldra kona með veldrafandi rödd)
Ég: Já, ég hef bæði fengið hrós og kvartanir
G: Hrós?????? Mig langar að segja þér að þetta er til skammar. Hér eru þúsund manns á svæðinu og klósettin allt of fá.
Ég: Nei, hér eru þúsund manns, á tjaldsvæðinu eru 10 klósett og samkvæmt lögum EES (já eða einhvers bandalags maður) á að vera eitt klósett á hverja 100 gesti. Hér eru óvenju margir vegna góðs veðurs en klósett eru löglega nógu mörg.
G: Þú ert í læknisfræði er það ekki? Já, ætlarðu ekki að koma til Keflavíkur þegar þú ert búin að læra? Við suður með sjó erum orðin leið á að vera tilraunadýr.
Ég: Já það er aldrei að vita, á nú alveg þó nokkur mörg ár eftir í námi. Ákveð ekkert strax.
G: Við höfum Kjartan en hann er 76 ára. Við viljum að okkur sé sagt hvenær við eigum að nota verkjalyf og hvenær við eigum að gera eitthvað annað.
Ég: Já það er auðvitað skiljanlegt
G: Það mætti alveg vera aðstaða til að tannbursta sig annars staðar en inni á klósettunum, það þarf að laga þetta
Ég: Það er aðstaða til þess bæði innst á tjaldsvæðinu og hérna fyrir utan klósettin í stóra snyrtihúsinu.
G: Já við erum alltaf send með sjúkrabíl á bróðamótökuna fyrir sunnan, það var ekki gert hérna áður fyrr........................
Röfl,bölv, bull og faraldur. Auðvitað lít ég á hana simpatískum augum og segjist skilja hana hundrað prósent en svona sé einfaldlega allt sem rekið sé af ríkinu og svona sé þetta úti á landi og svona sé nú lífið alveg ótrúlega óréttlátt stundum... já og flóðin í Jökulsá á Fjöllum eru náttúruundur. En klósettin séu nú samt lögleg. Undir lokin er konan farin að faðma mig og taka í höndina á mér.
Þessi kona hótaði þjóðgarðsverðinum fyrr í dag að kæra hana .... þetta sem fram færi hér á svæðinu væri kolólöglegt. Og hún vissi sko við hvern hún ætti að tala og hún gæti jú alveg skrifað í velvakanda... þó hún væri búin að drekka EITT rauðvínsglas.
........mannskepnan er skrítin skepna.
posted by xxx @ 02:52
