laugardagur, febrúar 12, 2005

Partýleit

Í gær kl 17 var föstudagskvöldið tabula rasa. Að sjálfsögðu skellti ég mér á fredagsbar. Hafði samt hugsað mér að fara heim um 21 og laga til. Taka því rólega. En einhvern veginn er eins og ég geti ekki fundið út úr því þessa dagana. Christina kom til mín og spurði hvort ég hefði einhver plön sem ég sagðist ekki hafa og það kom í ljós að við vorum á sama báti (getur maður ekki sagt það). Höfðum báðar hugsað okkur að drekka nokkra bjóra en fara svo snemma heim. Rétt til að vera social. Áður en ég vissi af vorum við báðar komnar í þessa heljarinnar partýleit. Partýin létu svo sem ekki standa á sér. Nóg af þeim hjá þessum blessuðu læknanemum. Enduðum á því að fara nokkur saman niður í bæ að fá okkur schawarma að borða. Á stað á Nørre gade sem fjölskylda frá Írak á. Huggulegur staður. Sátum bak við hjá þeim á tímabili og drukkum te með þeim og horfðum á sjónvarpið. Dæmigert ég að gera mig heimkomna eftir nokkra bjóra. Nú og kl 21 hentumst við svo í þetta partý sem var haldið hjá nýútskrifuðum lækni sem ég var að vinna með þegar ég var í klinik í Viborg. Þarna hafði heimferðartíma okkar Christina verið frestað til kl 24. Máttum ekki missa af partýinu. Þetta var skemmtilegt partý. Og þegar krakkarnir hjóluðu heim kl 24 hafði ég engan sjálfsaga í mér til að verða samferða þeim. Heldur fór á Social Club með skólatöskuna á bakinu og dansaði þar í 2 tíma. Var skutlað heim kl 3. Tærnar upp í loft í dag. Lestur á morgun. Mér finnst fysiologi og kemi erfið.

posted by xxx @ 20:08