föstudagur, maí 13, 2005

é búnna ver slappur

Þá er ég risin úr rekkju. Jú ég asnaðist til að verða veik. Eins og það sé leyfilegt. Gæti ef til vill tengst þessu skvampi hjá mér þarna um daginn. Guð veit. Annars rennur helgin ljúflega í garð. Eins og alltaf. Það er alltaf helgi. Stefnan tekin á huggukvöld með Arnarnum mínum í kvöld og ammli hjá Lene á morgun.. líklega í bæinn. Dansa við Mikaelinn. Veit ekki meir, það er jú þriggja daga helgi. Búin að dunda mér við það núna síðastliðna klukkustund að setja inn myndir. Einhverjar fleiri eiga eftir að bætast við. Myndir héðan af Dalgas... gjössovell.

posted by xxx @ 20:47