laugardagur, maí 21, 2005

ég..

..lét valta yfir mig í pool á miðvikudagskvöldið. Tók 4 leiki. Vann einn.. því mótspilarinn skaut svörtu kúlunni fyrir slysni í eina holuna í byrjun leiksins.
Ég rokka. Fékk þó hrós fyrir að vera falleg þegar ég stóð sveitt við að einbeita mér að hitta hvítu kúluna með kjuðanum. Hresst.

..fór í júróvísjónafmælispartý hjá Brynju og Ingibjörgu á fimmtudagskvöldið. Varð fyrir heví vonbrigðum eins og aðrir sem voru fyrir framan skjáinn. Ég sem hafði lýst því yfir í afmælispartýi síðustu helgi að Ísland myndi rústa forkeppninni ... og að Danmörk myndi ekkert komast áfram. Fékk að heyra það í skólanum í gær. Var aðeins of borubrött..höh. Hnuss.Greyið Selma okkar. Greyið við.

..tók þátt í hjólamaraþoni í gær. Við tókum okkur til og hjóluðum saman á milli íbúða nokkurra úr bekknum. Byrjuðum kl 14 og enduðum heima hjá mér kl 23. Í hverri íbúð var þema. Þemað hérna var baywatchparty. Fékk lánaðan eitt stykki Mitch. Ég henti þeim út í garð og hélt úrtökupróf um hver þeirra fengju að vera í næsta baywatchteam. Þau stóðu sig vel þessar elskur. Pössuðu vel upp á siliconbrjóstin, brostu sætt og smurðu olíu óaðfinnanlega.Hlaupastíllin var nokkuð góður. Í lokin prófaði ég þau svo í blásturaðferðinni.. en hún var minna mikilvæg. Bauð upp á Mojito. Fattaði að vísu í morgun þegar ég vaknaði þunn í náttfötunum öfugum að ég hafði gleymt að setja klaka í drykkina. Heh. Það er ekki hægt að muna eftir öllu. Fór of mikill tími í að finna rétta brjóstabolinn...og naglalakka á mér tærnar. Mínar aumu heilasellur áttu líka fullt í fangi með að dusta rykið af amerísku enskunni minni, tala dönsku með amerískum hreim og ofan á allt að vera sexy. Mikið af litlu stúlkunni krafist. Passaði vel upp á að brjóstin hoppuðu ekki upp úr bolnum. Það gerist jú stundum hjá okkur fallega fólkinu með stóru brjóstin. Heppnaðist vel og ég hef heyrt því fleygt að mér hafi tekist einstaklega vel upp með þann hluta af þemanu að vera sexy. Ekki slæmt.

..setti inn nokkrar nýjar myndir. Þetta eru myndir sem amma var að senda mér. Teknar af henni sl sumar. Er jú á þeim flestum að landvarðast og svona. Gaman að vera í brennipunktinum. Getið kíkt á þær. Svona ef þið nennið. MYNDIR.


.. ætla ekki að horfa á júróvísjón í kvöld. Á viskírest inn í skáp sem einhver skildi eftir í gær. Aldrei að vita nema maður drekki sorgum sínum. Gæti setið hérna heima. Með viskí í annarri og vindil í hinni. Hlustað á gömul íslensk júróvísjónlög. Drepist fram á stofuborðið. Rumskað útslefuð á sunnudaginn með útbrunninn vindilinn í munnvikinu og klárað restina úr glasinu.


.

posted by xxx @ 11:17