Uldum Højskole
Í þrjóskukasti yfir eðlisfræðidæmum og í koffínsjokki ákvað ég klukkan 2 á fimmtudagsnóttina að ég væri orðin drulluleið á Árósum. Tók þá stóru ákvörðun að beila á bíóferð, bekkjarpartýi og íslendingapartýi fara í heimsókn til Arnars í Uldum. Hoppaði upp í lest kl 16 daginn eftir, eftir að hafa náð fara í sturtu, pakka niður, mála mig og þurrka á mér hárið með hárblásara, klæða mig í pilsið og stígvélin á aðeins 30 mínútum. Arnar og Sumi tóku á móti mér í Vejle en þar tókum við svo rútuna til Uldum. Stórt ferðalag þetta. Gaman að sjá allt fólkið sem Arnar er búinn að vera að röfla um síðan í janúar..og kominn tími til. Fórum á tónleika og síðan á Caféen í skólanum og þar sat ég og minglaði við hina og þessa. Elska þessa stemmingu sem myndast í lýðskólum. Þegar rauðvínsflaskan mín var búin og gott betur var ég orðin svo þreytt að ég var farin að dotta við borðið þar sem við sátum að spila Black Jack. Ekki mikil orka í minni. Klukkan var nú samt orðin 4. Skreiddist þá loksins upp í herbergi að sofa og tókst það að lokum eftir mikla leiðsögn frá Arnari ;)
Daginn eftir ákvað ég að ég væri ekki að meika annað djammkvöld. Fólkið þarna reyndi eins og það gat að halda mér þarna lengur. Veit ekki alveg ástæðuna. En á tímabili voru aðfarirnar orðnar það harðgerar að ég sat á stól bundin niður með kaðli... já .. ég skil ekki. Tókst þó að losa mig, hlaupa út og ná rútunni og síðan lestinni til Árósa. Kom við á sushistaðnum hérna í hverfinu og rölti svo heim.
Er að reyna að lesa... líkar samt ekki alveg við það hvernig ég er að lesa núna. Er að hugsa um að fara í ræktina og hlaupa í mig betri einbeitingu. posted by xxx @ 13:57
