föstudagur, mars 25, 2005

Átak stórtak

...núna er ég formlega komin í átak. Held að ég muni standa mig betur ef ég set það hérna á bloggið mitt fyrir framan vefþjóð. Hef verið í því formlega í 6 daga og það er fyrstu nammidagurinn á morgun. Þá fer ég í matarboð sem mun innihalda áfengan fordrykk, lambakjöt og meððí og dúndrandi góðan óhollan eftirrétt. Ásamt partýi og svaðilför. Það eru páskar. Ekkert páskaegg. Stútaði einu þó í Uldum á laugardagsnóttina. Nóttina fyrir átak. Búin að fara 4 sinnum í ræktina og ekki látið neitt óhollt inn fyrir mínar varir í 6 daga. Hana nú. Hef aldrei farið í alvöru átak áður. Þetta er skrítið. Klapp á öxlina og peppup væri vel þegið.

Meira var það ekki að sinni. Veðurfréttir verða næst lesnar klukka fimmtánþrjátíu.

posted by xxx @ 17:08