sunnudagur, nóvember 13, 2005

Unaðsheimur Guðnýjar....

Ég fæ ekki nóg af þessari yndislegu lífeðlisfræði. Ég les næstum þann tíma sem ég er vakandi og skil allt sem ég les. Þetta á eftir að vera pís of keik. Nú og segjum svo að ég falli þá fæ ég hálft ár til að lesa þetta ennþá betur og ná minnstu smáatriðunum með. Langar eiginlega ekkert meira en það. Gæti tekið ræktina með og orðið ógeðslega flott um leið. Svona til að brenna því nammi sem kaffið hefur ekki náð að brenna þessa önnina. Læf is bjútífúll...og ég líka.

Afmælisboð hjá tengdó næstu helgi. Er líka farin að hlakka til þess. Elska að smjatta dönsku við ömmur og skrítna frændur.

Best að fara í sturtu og henda sér í beddann ...

kaldhæðni? Nei!

posted by xxx @ 21:50