Böh!
Hef verið gagnrýnd örlítið fyrir það að vera ekki á lífi lengur. En ég er það. Bara á svolítinn annan hátt.
Ég les. Samt aldrei nóg. Fell nokkur prófatár inn á milli. Og reyni svo að halda áfram að lesa. Ótrúlegt hvað maður getur fest sig inni í sjálfum sér. Finnst þetta svo mikið og svo stórt.
Annars var ég góð kærasta um daginn. Eða mér fannst það. Mikaelinn átti afmæli og við fórum út að borða. Gott. Fékk mér krónhjartarkjöt á franskan máta. Skellti mér á Ris Ras á eftir og þar sem ég lét afmælisbarnið tapa í borðfótbolta fyrir gestum og gangandi. Mikið rosalega er ég léleg í þessum andskota. Þarf að æfa mig betur. Líka góð afsökun til að drekka St Feuillien. En nei. Ekki tími núna. En í lok janúar. Þá er tíminn. Til að hygge sig. Seinni hluti janúar er tíminn. Komin með vott af heimþrá. Get ekki beðið eftir að eyða 18 dögum á Íslandi. Eitthvað í Reykjavík. Eitthvað á Akureyri hjá elsku Kristínu Kötlu. Og í faðmi fjölskyldunnar fyrir norðan. Get næstum ekki beðið.
Svo á ég góðan vin í kvöld. Sem eldaði handa mér pYlsur og gaf mér frelsi til að hugsa um eitthvað en skrímslið í hausnum á mér. Vona að ég losni við það fljótlega.
Já sem sagt þetta er ég þessa dagana. Og ég er sko á lífi. :) posted by xxx @ 22:13
