föstudagur, júlí 07, 2006

Þessi vika

Þá er fyrsta vikan mín hérna á Íslandi liðin og ég er búin að hafa það eins og blóm’ í eggi. Ferðin til landsins gekk vel. Mikael byrjaði á að fylgja mér Í lestinni til Skanderborg. Við áttum þessa líka dramatísku kveðjustund í lestinni (nei!) hann raðaði farangrinum mínum fyrir mig og smellti einum á mig bless. Lestin var lögð af stað þegar kallinn gerði sig líklegan til að fara út. Haha! Mér fannst það ekki leiðinlegt. 20 mínútna kveðjustund. Þegar ég kom á Kastrup setti upp guide andlitið og leiðbeindi fullt af eldra fólki, þýddi yfir á íslensku og ég veit ekki hvað og hvað. Mikið gagn af mér. Mér fannst ég svo fjölhæf. Fékk líka þessa fínu ferðafélaga. Sat í miðjusætinu í flugvélinni og á hægri hönd var eldri maður, íslenskur. En á þá vinstri ungur austurríkismaður. Þeir töluðu báður í belg og biðu og ég hafði vart undan þar sem báðir töluðu jú við mig.Annar á ensku hinn á íslensku. Ég var orðin kolrugluð í lokin og talaði bæði tungumálin í bland og sletti dönsku inn í. Of krefjandi fyrir litlu mig. Sérstaklega þar sem heilinn minn vinnur í fyrsta gír yfir sumartímann.

Eyddi tveimur dögum á Akureyri hjá Kristínu Kötlunni minni. Alltaf jafngott.

Svo er það vinnan. Ánægð með að vinna utan dyra og brosi út að eyrum allan daginn. Búið að vera fínasta veður fram að þessu. Núna er norðanátt. Rigning.Rok. En það er allt í lagi. Ísland beint í æð!

Á morgun er bekkjarmót. Var mikið í vafa um hvort að ég ætti að mæta. Ekki mikil mæting sýnist mér. Á síðustu stundum ákváðum við Hulda þó að láta sjá okkur. Býst við að vera þar eftir vinnu annað kvöld. Það verður alveg ágætt að sjá sum andlitin aftur. Ekki mikið séð af þeim undanfarin ár. Berglind og Írena og Anný og Hilda og ..og.. jájá. Sjá hvernig lífið hefur farið með þessi grey.

Og já er búin að fá út úr þessu blessaða prófi mínu. Það gekk bara vel. Yfirstaðið og LÍN getur þá borgað mér péning. Mér finnst svolítið gaman af þeim. Sérstaklega þegar farið er að grynnka í péningabuddunni.

Í kvöld ætla ég að grilla í rigningunni og hlægja framan í veðrið. Viðra í mér víkingablóðið.

posted by xxx @ 18:10