Dr. Guðnýjus
Ég fór til læknis í síðustu viku. Mig vantaði nefnilega pillur. Til að byrja með var ég á því að labba út aftur því við fyrstu sýn fannst mér læknirinn vera kærasti vinkonu minnar. Hann var í það minnsta mjög líkur honum. Og ekki langaði mig að ráðfæra mig við þann kauða. Ég leit á nafnskiltið og komst að því að hann var ekki Nielsen. Svo ég hætti mér inn úr biðstofunni og inn fyrir dyrnar. Sko dyrnar á skrifstofunni hans.
Hlammaði mér í sætið og bauð góðan daginn. Því næst romsaði út úr mér hvað amaði að ásamt því að útskýra fyrir honum hvað ég héldi að væri best að gera.
Hann var alveg sammála mér. Og útskýrði fyrir mér nákvæmlega það sem ég hafði sagt þrjátíu sekúndum áður.
Svo fékk greyið maðurinn spurningar um aukaverkanir, skammtastærðir og innihald lyfsins. Þar á eftir enn fleiri spurningar og miklu fleiri spurningar.
Ég þakkaði fyrir mig og labbaði út með lyfseðil á það lyf sem ég hafði í raun valið mér áður en ég labbaði inn um dyrnar.
Mikið roslaega er ég að lesa lyfjafræði þessa dagana.
Og mikið hlýt ég að vera óþolandi sjúklingur.
En svona að lokum! Hvað er Guðný að gera? Voðalega lítið. Hún er að lesa. Hún borðar og sefur. Stundum fer hún í kickbox. Inn á milli hittir hún fólk. Þá aðallega nokkra útvalda vini. Hún neitar að djamma en fær sér annað slagið einn stakan bjór. Hún fór í leikhús um daginn og sá "Gylp". Það fannst henni ótrúlega fyndið. Hún komst enn og aftur að því að hana langar ekki að verða mamma strax.
knúsát :) posted by xxx @ 22:31
