þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Fríhelgi-lognið á undan storminum

Mikið líður sumarið hratt. Það byrjaði líka seint hjá mér. Komst ekki í sumarfrí fyrr en 22. júni og ekki til landsins fyrr en 27.júni. Og núna er eiginlega kominn ágúst. Mest allt sumarið fór í vinnu (sko ég er strax farin að tala í þátíð.. sem er bannað því það á að koma hitabylgja um helgina. Sumarið er ekkert búið. Það er bara svo kalt í dag og haustlegt).

Eina helgafríinu mínu lauk í gærkvöldi. Eina helgafríið sem ég átti í sumar. Það nýttist hins vegar vel og ég kom endurnærð í vinnuna aftur. Tilbúin í síðasta slaginn. Og ekki veitir af fyrir komandi helgi. Verður hell. Er á langri vakt og líklega bætist næturvakt ofan í hana. Verður víst stappað hérna í Ásbyrgi um helgina. Ástæðuna vita flestir. Ætla samt sem áður ekki að segja hana hér því ég vil ekki hætta á að fleiri komi á svæðið. Fáránlegt en það gæti gert vaktina mína ennþá verri. Ég er eigingjörn í dag.

Eftir vinnu á föstudag flýtti ég mér inn á Akureyri. Bankaði upp á hjá Kristínu Kötlu og við náðum að stúta einni hvítvín og annari rauðvín meðan ýmsar heitar umræður bar á góma. Líknardrápin voru einna erfiðust. Mikið rosalega kvíði ég fyrir því að þurfa að mynda mér alvöru skoðun á þeim málum.
Þegar Kristín fór að sofa kom Halla við hjá okkur og ég skellti mér með henni á smá pöbbarölt. Hún var að koma af Sigur Rósar tónleikum í Öxnadal. Hittum margan furðufuglinn í bænum. Sæta furðufugla. Rifjaði upp reglurnar í augndaðri. Það er nefnilega svolítið sniðugt. Hressir og kætir. Svo kemur maður við á Tik tak og fær sér búkollu með bernies sósu og frönskum. Fer svo heim. Ekkert flókið. Enginn bömmer. Skaut mig samt örlítið í fótinn þegar ég tjáði mig um hvað mér þætti æðislegt ömurlegt orð. Ég get samt ekki að því gert. Mér finnst það bara.

Daginn eftir missti ég mig á útsölu. Yfirleitt fer ég ekki á útsölur því ég finn aldrei neitt sem mig langar í og þar að auki hef ég fyrir reglu að kaupa ekki föt á Íslandi. Miklu meira úrval úti og líka ódýrara. Það er hins vegar ekki Nikita í Danmörku. Ég réð því ekki við mig.

Mærudagar á Húsavík tóku við. Bryggjurölt og smá þrásameeting. Alltaf gaman að hitta systkini pabba. Svo hress. Þar fara yfirleitt fram þær skrautlegustu umræður sem ég hlusta nokkurn tímann á. Verð að viðurkenna að aðeins þarna heyri ég meting um hver hafi lægstu launin og hver skuldi mest. Já eða að vigtin er dregin fram og athugað hver sé þyngstur. Nú…eða þegar þrásamótin eru haldin og keppt er í fótbolta, trékasti og þráshlaupi. Einstakur hópur. Luv ðem.

Rölti heim til Annýjar og sötraði bollu hjá henni. Góða bollu en heldur sterka. Þaðan forum við gellurnar niður á bryggju. Sumar okkar fóru á Baukinn meðan aðrar létu sér nægja að vappa um fyrir utan. Ég var ein af þeim síðast nefndu. Gat ekki hugsað mér að vera eins og síld í tunnu þarna á dansgólfinu. Enda var það fínt. Nóg af fólki að spjalla við og heilmikið um að vera. Þarna á planinu fékk ég að gegna hinum ýmsu hlutverkum. Ég var frænka, kærasta og doktor. Á tímabili var ég jafnvel Kollar Kristjáns. Fyrst og fremst var ég samt systir Gumma. Einhver sem býr í útlöndum og er í skóla. Skemmtilegt. Það er svo misjafnt hvað maður er. Hvað fólki finnst maður sé.

Á sunnudeginum tók ég Mývatnsrúnt með pabba en það er árlegur viðburður. Mývatn að sumri til er perla. P E R L A. Áður en ég renndi mér í sveitina aftur kom ég við hjá Jónunni minni og fékk að halda á nýjustu prinsessunni. Hún er svoo sæt.

Jæja…best að koma sér heim. Skella dagblaði yfir hausinn og þramma í gegnum rigninguna. Inn í bíl. Hlusta á Sigur Rós. Keyra. Dagblaðið yfir hausinn aftur. Inn. Bursta tennur. Fara upp í rúm. Sofa. Ég er þreyttur. Knúsát.

posted by xxx @ 00:15