Gúd stöff
Þá er verslunarmannahelgin búin og við lifðum hana af. Ég kíkti á Sigur rósar tónleikana á föstudagskvöldið og dó úr gæsahúð. Eftir það tók við stapp og strögl á tjaldstæðinu. Fer ekki nánar út í það. Annar hver tjaldgestur bauð mér á deit og afgangurinn var hundleiðinlegur. Nei..það er helber lygi en nóg um það.
Nýkomin úr tveggja daga fríi. Fór aðeins inn á Húsavík og kíkti á uppáhaldsstaðinn minn. Bókasafnið. Tók sæta dani upp í en þeir höfðu verið hérna á tónleikunum og voru á leiðinni inn á Akureyri þar sem þeir ætluðu að halda hringferðinni um landið áfram. Fyrstu puttalingarnir sem ég tek upp í, tjah fyrir utan sætu tékkana árið 2000. Þessir sem gáð
Héldum grillveislu hérna í gærkvöldi og grilluðum fjallalamb. Slurp. Þónokkuð af starfsfólkinu er að hætta í dag. Líka ótrúlega rólegt á svæðinu. Ekki nema 12 vinnudagar eftir.
Kominn smá brottfararfiðringur í mig. Svo góð tilfinning að finnast maður tilbúin að takast á við komandi vetur. Hlakka til að klára þessa stuttu bóklegu kúrsa og fara svo að vinna eftir áramót. Heil önn í verklegu námi. Það verður æði. Ég ætla að reyna að troða mér í eins margt og ég mögulega get. Vera frek. Öðruvísi kemst maður eeeekkert áfram. Þarf líka að tékka á möguleikunum hjá læknum án landamæra og ýmsum hjálparstörfum. Er mikið að hugsa um að taka mér hálfs árs frí og fara eitthvað út í óvissuna. Kíkja á málið og taka ákvörðun seinna.
Ég er ótrúlega sátt við síðast liðnar vikur. Samt er einhvern veginn ekkert sem stendur upp úr. Einhvern veginn allt gott samt. Allt. Næstum allt.
Gúd stöff:
*Rás 2. Besta útvarpsrásin, en þessi elska hefur fylgt mér hvert sem ég hef farið í allt sumar.
*Bíllinn minn. Hann er pæði. Ber mig hvert sem er þegar ég vil.
*Fjölskyldan.
*Samstarfsfólkið. Good people. Það sem þetta fólk getur fengið mig til að grenja úr hlátri.
*Veðrið. Ég er búin að vera rosalega sátt við veðrið í sumar.
*Bekkjarmótið. Svo gaman að hitta stelpurnar aftur.
*Akureyri. Sundlauguin, göngugatan(svo fljótfarin ;)), Greifinn, Kaffi Amor, Bónusvídjó og strax (nammi allan sólarhringinn) nú og svo mæ görls Kristín Katla og Halla.
*Mærudagar. Bróðir minn. Þrásarnir. Stelpurnar aftur. Ávextir. Bull.
Samt sem áður eru stærstu atburðirnir enn eftir. Brúðkaupið hennar Berglindar núna á laugardaginn og svo kemur hjásvæfan mín í fyrsta skipti til Íslands eftir tæpar 2 vikur. Þá ætla ég að leika túrista. Bregða mér hinum meginn við borðið. Ég ætla að enda íslandsdvölina mína í Reykjavík. Taka Gullfoss og geysi hringinn. Fara í Bláa lónið. Þingvellir. Kíkja aðeins út á lífið í borg óttans. Hitta Hulduna mína. Og einhverja fleiri. Svo fljúgum við út með Arnarinum mínum 28.ágúst. Heim í íbúðina mína. Hlakka til að koma heim. Hlusta á nöldrið í Arnari aftur. Nöldrið yfir símanum mínum (sem hefur reyndar fylgt mér til Íslands því ég hef ekki enn náð að eiga fullt símtal við hann því batteríið klárast alltaf), yfir því hvað allt þurfi að vera eftir mínu höfði og yfir því hvað ég er mikil prinsessa (sem líka hefur fylgt mér til landsins en Haukur og Steini landverðir tóku það nöldur að sér). Æ missjú Arnar.
Það er ógislega sætur frakki hérna fyrir utan. Og hann er að koma hingað inn í 3 skiptið. Held að hann sé að bíða eftir rútunni. Hah. Gotta go. posted by xxx @ 13:47
