miðvikudagur, júní 06, 2007

Langar nætur- Ólesanlegt bull.

Mikið afskaplega þykir mér leiðinlegt að vera vakandi þegar ég vil ekki vera vakandi. Þegar maður hefur ekkert val. Augun eru galopin og í hvert skipti sem ég loka augunum sperrast þau upp aftur. Á opna gátt. Alveg óþolandi. Ég er andvaka. Ég ætlaði mér að sofna kl 23 í kvöld, búin að halda vídjókvöld með kollegíefólkinu hérna-sýndi þeim engla alheimsins. En ég get ekki sofnað. Það er of heitt. Of rakt loftið hérna í kringum mig. Glugginn galopinn og ég sef með dúndurþunna sæng. Dugir ekki til- ég er að drepast úr hita.

Nú svo ég tók bloggrúntinn, og skoðaði mbl.is, visi.is, ruv.is horfði á kastljós sl viku og fréttatímana og svo ákvað ég að blogga sjálf. Hef samt ekkert að segja. Ekkert markvert að gerast. Kláraði verkefnið mitt formlega í dag og skilaði. Ver það 19.júní, sem sagt daginn áður en ég segi bæbæ við danmark í bili.

Ég nenni ekki klinik lengur. Ómögulega. Eyddi deginum í dag í að horfa á 12.annar læknanemana fara í munnlegu lokaprófin. Það var fróðlegt. Hugsa að ég troði mér inn í fleiri próf á morgun. Ég verð í þessari stöðu eftir tvö ár. Skrítin tilhugsun. Tíminn er svo fljótur að líða. Allt of fljótur að líða. Allt í einu verð ég búin og þarf að taka stórar ákvarðanir. Hvar á ég að taka kandidatsárið? Á ég að fara til Íslands eða á ég að vera hérna? Hvar á ég að sérhæfa mig og í hverju?

En já samt búin að taka smáar ákvaðanir núna því ég þori ekki að taka þær stóru. Búin að leigja íbúðina mína út í Árósum og ætla að taka næstu önn hérna í Álaborg. Þar sem ég er búin með verkefnið sem ég átti að eyða einum og hálfum mánuði í á næstu önn fæ ég slatta frí á þeirri önn. Rúmlega tveggja mánaða frí-sem ég veit ekki hvað ég á að gera við. Fara til Íslands-sem ég myndi ekki nenna nema ég fengi einhverja vinnu. Vera hérna og fá kannski eitthvað lægevikariat. Það er víst ekkert mál hérna í Álaborg. Ferðast? Veit ekki. Enda slatti af mánuðum í það. Mér þykir erfitt að ákveða í hvað ég á að fara á morgnana. Það er að segja þegar ég þarf ekki að fara í læknafötin. Eins og staðan er í dag get ég allavega ekki ákveðið sjitt. Veit ekki afhverju. Langar í svo miklar breytingar en veit ekki hverjar þær eiga að vera. Kannski verð ég orðin ákveðnari eftir sumarfrí. Nja og ef ekki held ég bara áfram að taka hænuskref. Sleppi því að líta of langt fram á við.

Núna um daginn voru 2 vinkonur mínar að bætast í óléttuhópinn, þær eru danskar. Önnur gengur með tvíbura, hin með einbura. Voða ánægð fyrir þeirra hönd. Svo ég verð "Guðný frænka" amk sex sinnum á þessu ári. Nauts ég er að ljúga. Finnur og Soffía eru jú búin að eignast eitt svo það verða í alls 7 skipti á þessu ári. Ekki amalegt. Elska að kaupa barnaföt. Svo lengi sem þau eru á annarra manna börn.

Ég er komin með ógisslega sítt hár. Ég varð svo skelkuð síðast þegar ég fór í klippingu að ég hef ekki þorað að klippa mig síðan. Það var í ágúst á síðasta ári. Lige lovligt allt of langt síðan. Bráðum verð ég komin með hár niður á rass. Nei nei. Ekki svo langt. En bráðum er komin tími á svolítla rýjun.

Og svona af því að við minnumst á rýjun. Mig langar í svetina. Ekki til að rýja kindur. Ekki mitt speciale. Heldur í sauðburð. Hann er samt eiginlega búinn. Fékk bara skyndilega löngun til að taka á móti lömbum þegar ég las bloggin hjá frændsystkinum mínum. Og fleirum. Fólki sem ég þekki úr sveitinni. Allir að vesenast í sauðburði.

Ætla að hitta átklúbbinn minn á föstudaginn. Svo langt síðan ég hef hitt þær allar. Svona er þetta að vera í útlegð. Svo ætla ég í sumarbústað á laugardag og sunnudag. Einhvers staðar hjá Skive. Ég veit ekki hvar Skive er. Geri ráð fyrir að ef ég bið um lestarmiða til Skive á hovedbanegården og hafi símann við höndina muni þetta allt fara vel. Það er spáð 27 gráðum á laugardaginn. Svo ég þarf að leggja snemma af stað. Nenni ekki að sitja inni í lest í 27 stiga hita. Nei. Tek bikiníð fram og hendi mér á flöt þarna einhvers staðar í sveitinni. Skive er í sveitinni. Ætla að plata stelpurnar til að grilla. Svo ég geti spókað mig á bikiní við grillið. Er það ekki kúl. Ég hata bikiní.

Hvað á ég að segja meira. Klukkan eiginlega orðin tvö og ég sé fyrir mér hversu grámygluð ég verð í fyrramálið. Það er svo sem allt í lagi. Er ekki að fara að gera neitt krefjandi. Þarf bara að halda mér vakandi til að mæta á æfingu annað kvöld. Það væri gott.

Ég nenni ómögulega að vera ég akkúrat núna. Væri til í að vera einhver allt önnur. Einhver sem er sofandi. En yfirleitt er ég samt frekar ánægð með að vera bara ég.

Og hva. Kalli Bjarna tekinn með dóp. Og Hillary Clinton líklegust sem næsti forseti BNA. Svona eins og staðan er í dag. Jahérna. Mér finnst Hillary samt fín. Paris Hilton hefur það víst bara fínt í fangelsinu og danski idiotinn sem gerði allt vitlaust á landsleiknum Danmark-Sverige sl laugardag búinn að biðjast afsökunar með tár í augunum og allt.

Allt að gerast meðan mér finnst heimurinn standa kjúrr hjá mér. Sem er reyndar ágætt eitt andartak.

Æj þetta er orðið gott og núna ætla ég að reyna að sofna.

Eigiði góðan dag.

posted by xxx @ 01:25