miðvikudagur, júlí 04, 2007

On ðe klake in ðe reykjavíks

Kíkti norður,átti yndislegan tíma í sveitinni, hitti fólk, keyrði suður, hitti fólk, keypti kort í ræktina (og búin að vera gegt dugleg), hitti fólk,fékk mér bókasafnskort og tók ferðabækur í tonnatali, byrjaði að vinna, hangi á kaffihúsum, hitti fólk, fór á djammið, týni hlutum og svo framvegis og svo framvegis. Ætli ég muni ekki halda svona áfram. Mér líkar rosalega vel að hafa ákveðið að breyta svona til í sumar. Guðný er sáttulíus.

Áður en ég lenTi á klakanum kláraði ég klinikina, 9.annar verkefnið, leigði út íbúðina mína og pakkaði öllu klabbinu niður. Svo fór ég til köben með sjálfri mér og átti stund með búddamúnk sem meinar að kúaskítur sé hreinn og bakteríulaus. Hann heldur því fram að það hafi verið rannsakað af læknum. Púnktúr og basta. Gott að því er lokið öllu saman og þá sérstaklega meetingnum við munkinn-sem var þó að öðru leyti ágætis kall.

Ég efast stórlega um að ég eigi eftir að blogga mikið á næstunni. Finnst ég þurfa svolitla pásu..frá mörgu og líka sjálfri mér. En samt ekki. Kannski þarf ég að halda sjálfri mér fyrir mig.

Næsta árið er ég hálfheimilislaus (tja eða ekki, kannski á ég heima um allt) en ég hef góða tilfinningu fyrir því. Tek einn mánuð í einu, og það mun vonandi leiða mig rétta leið.













Luv g

posted by xxx @ 02:54