þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Útilega

Ég ætla í útilegu. Ég ætla að fara í dagsferð upp í Kárahnjúka, taka myndir af öllu og gráta votum augum yfir þeim í ellinni þegar allt er komið undir vatn og öll fegruð náttúrunnar á þessum slóðum hefur verið þurrkuð út. Ég hef mikið verið að pæla í að taka með mér sprengiefni og sprengja upp þær framkvæmdir sem eru þegar komnar í gang. Mig vantar dínamít. Því verð ég að redda fyrir morgundaginn. Er þetta opinber hótun? Er ég að gera eitthvað ólöglegt með því að skrifa þetta hér? Ég ætla að kaupa einnota grill og hamborgara í Bónus á Egilsstöðum á leiðinni. Ég ætla að grilla í rigningunni sem er spáð á morgun. Ég læt ekkert stoppa mig. Og síðast en ekki síst... og ef ég hugsa mig betur um er þetta örugglega það fyrsta sem ég geri þegar ég mæti á svæðið. Ég ætla að faðma Arnar... dansa stríðsdans í kringum grillið og fagna því að hitta fornan vin. Arnar, here I come. Þú kemst ekki að heimsækja mig því þú er önnum kafinn með allsberum kínverjum, ég kem og heimsæki þig. Ég er ekki allsber kínverji. Mun líklega standa á dæmdri grundu kl 13 á morgun.

posted by xxx @ 02:50