sunnudagur, febrúar 27, 2005

Ég er leiður

Það er bull og vitleysa að verða skotin í einhverjum dana. Það er yfirhöfuð bara bull og vitleysa í mér að verða skotin í einhverjum því ég klúðra því alltaf. Já eða Guð þarna uppi gerir það kannski. Togar í einhvern spotta svo allt fari í eitthvað rugl. Böh. Er ekki best að trúa á örlögin. Hvíti riddarinn er þarna úti. Stekkur af hestinum sínum við tjörnina í hallargarðinum (já eða háskólagarðinum) þar sem ég sit og er að flétta á mér hárið. Einn fagran sumarmorgunn.

Og hvað gerir maður í ástarsorg? Í bíómyndunum borðar maður ís og súkkulaði. Helst súkkulaðiís. Mig langar samt ekki í súkkulaðiís. Mig langar upp í rúm að sofa. Mikið er ég ánægð yfir hvað ég á yndislega vini. Á svona augnablikum er gott að finna það.

posted by xxx @ 19:08