sunnudagur, febrúar 13, 2005

Valentínusardagurinn

Á morgun er valentínusardagurinn mikli. Ég segi mikli því ég hef upplifað hann í New York. Á Manhattan voru kílómetralangar biðraðir fyrir utan hverja einustu blóma-og gjafavörubúð. Kl 14 voru öll blóm í nærlægum búðum uppseld. Sjaldan upplifað jafnmikla múgsefjun út af einum skitnum degi. Og skitnum degi? Ég hef oft alveg átt ágætan valentínusardag. Bæði fengið blóm, kort og sæt sms. Þrátt fyrir það allt saman er ég alls enginn aðdáandi að þessu degi og finnst hann að mestu vera í hag verslunarmanna. Það er miklu skemmtilegra að koma elskunni sinni á óvart á degi þar sem hann/hún síst býst við því. Þegar karlmenn eiga í hlut er samt eflaust ágætt að hafa einn dag þar sem þeir verða að koma einhverju í kring og eru sterklega minntir á það með öllu þessu auglýsingaflóði dagana á undan. Þeir eru svo gleymnir greyin. Vil samt koma því á framfæri að yfirleitt tek ég að mér karlmannshlutverkið í samböndum hvað þetta varðar. Gott að geta gert það með góðri samvisku þetta árið ;)

posted by xxx @ 18:33