Útdráttur gærkvöldsins
Já maður! Fór á þetta hörkudjamm í gær:)
Kemi fyrirlestur til 17, Alan og Jes töluðu svo ógeðslega mikið að ég náði ekki helmingnum. Pirrandi. Þögðu rétt á meðan Alan sofnaði.. blablabla
Kl 17 mætt á fredagsbar
Þurfti mikið að passa mig því ég var ekkert búin að borða yfir daginn
Stútaði samt 3 bjórum á einum og hálfum tíma
Fórum til Antons að borða pizzu (heppin ég)
Torbjørn tókst að plata mig í salsakennslu
Ég dansaði salsa við Torbjørn
Talaði við allt of mikið af fólki.. fólk sem ég er ekki vön að tala við
Fór á trúnó við Möggu inni á klósetti. Það var gott trúnó.
Samdi um kaup á bókum fyrir næstu annir við Stefan
Ásta mætti á svæðið... það var gaman
Pabbi minn hann Kjetil sem er vanur að passa upp á mig varð blindfullur
Dansaði eins og grúppía með Karin og Kicki upp við sviðið (langt síðan ég hef gert það ala Ýdalir og Sjallinn)
Flúði skrítna stráka sem voru að reyna við mig, þeir voru ekki að fatta nein hint
Dansaði... mikið
Fór niður í bæ á Socialinn (hvað kemur til)
Dansaði
Kl allt í einu orðin fokkin 5
Labbaði heim ... kom við á Schawarma barnum og fékk mér að borða
Þunn í dag...
Þurfti mikið á þessu djammi að halda til að rífa mig upp úr grámyglu síðustu viku.
Jæja núna er ég tilbúin að fara að taka sjálfa mig aðeins meira alvarlega og nýja lífið mitt byrjar í dag með því að laga til í herberginu mínu (gott að nota þynnkuna í það)... komið nóg af þessu djammrugli. Það er samt svo erfitt að segja nei... posted by xxx @ 12:21
