föstudagur, maí 27, 2005

Snøff & snýt

Jabbs, ég er hreinlega ordin veik aftur. Lifi í svolítilli afneitun gagnvart tví tessa dagana tar sem ég skunda í skólann trátt fyrir ad ég sé ad hósta úr mér lungunum. Ekki tad besta og ekki til fyrimyndar. Sit á aftasta rekka í tímum med klósettrúllu, nefsprey og kaffi. Ætladi mér ad svara spurningu í tíma í gær tar sem ég hélt ad kennarinn væri ad spyrja mig en tad kom ekki ord upp úr mínum auma hálsi. Eitthvad urg sem enginn madur skildi. Mér var sagt ad tegja og fara heim ad sofa. Sem ég og gerdi eftir tímann. Nenni tessu bara ekki, var veik fyrir 2 vikum sídan. Ørugglega med Aids. Ekki edlilegt ad vera svona tegar tad er yfir 20 stiga hiti úti.

Plønin um helgina virdast ad engu ordin tví ég hugsa ad ég beili á innflutningspartýinu hjá Karin og Kicki í kvøld. Fadmi sængina mína í stadinn. Svona til ad vera skynsøm einu sinni...bara einu sinni. Spád miklum hita á laugardaginn og vil helst geta verid utan dyra tá. Úti í gardi ad sleikja sólina. Æfa mig fyrir brúnkuna sem á ad koma í sumar. Ádur en ég hætti mér út á strøndina.

Fyrsta grillid mitt var á tridjudaginn sídasta. Matarklúbburinn. Kjøt og grænmeti á teini og marshmallows og súkkuladi í eftirrétt. Skolad nidur med hvítvíni og raudvíni. Mér finnst matur svo gódur. Ætla ad grilla aftur á sunnudaginn en tá med íslensku læknanemunum. Hjá mér er komid sumar. Burt med tetta slím og tennan slappleika..tá er ég til. Ædi pædi.

Og svo ég væli adeins meira. Mér finnst ømurlegt ad geta ekki hringt í Arnar. Djøfullegt. Hann stakk mig af til Noregs. Tegar ég er ordin vøn tví ad hafa einhvern til ad væla í tegar ég er ekki upp á mitt besta finnst mér NÆSTUM óafsakanlegt ad stinga af eins og ekkert sé. Skilja mig eftir í sárum. Gott ad hann er ad koma til ad vera í haust hérna í Árósum. Krosslegg fingur og vona ad hann komist inn í hjúkkuskólann hérna. Sniff.

Ína, Óskar og Magga klárudu anatomiprófid í gær. Heyrist hljódid vera gott í teim... jeij!! Tillykke.

Tetta var litla ég tessa dagana.
Jæja, ætla ad snúa mér aftur ad bókunum.

posted by xxx @ 09:38