Gæsapartýýýý!!
Mary giftir sig 25. juni í Kalíforníunni. Við tókum okkur því til og héldum gæsapartý í gærkvöldi. Höfum skipulagt það sl 2 mánuði. Stelpuanginn hafði ekki grænan grun. Anne og Trine þóttust hafa óóóótrúlegan áhuga á "glatte muskelceller" og báðu fyrirlesarann í gær að gefa sér leyfi til að halda smá fyrirlestur um rannsókn sem þær höfðu lesið um. Fólk hrissti hausinn yfir þessum súpernemendum. Allir komnir í sumarfrí í hausnum á sér og ekki að meika einhverja heila. Pirringurinn breyttist þó í stórt bros og hlátur þegar sannleikurinn komi í ljós. Eftir að hafa haldið fyrirlestur dauðans sem var svooooo lygilegur.. átti við engin rök að styðjast í raunveruleikanum kölluðu þær Mary niður á svið og létu hana gera einhverjar æfingar sem áttu að hafa verið liður í þessari rannsókn sem þær höfðu lesið greinina um. Á sama augnabliki settu þær glæru á skjávarpann þar sem stóð "..til hamingju Mary, gæsapartýið þitt byrjar NÚNA!" Anton kom inn í svörtu mótorhjólaleðurdressi og hélt á Mary út. Keyrði með hana um götur Árósa. Að sjálfsögðu höfðum við reddað rauðu leðurdressi handa Mary og bleiku brúðarslöri. Hihihihihi!
Svo byrjaði partýið heima hja Mathilde sem býr í 190 m2 íbúð í miðbænum. Alls konar snittur og mojito sem ég fékk mikið hrós fyrir. Elska mojito og gaman að deila því sem maður elskar með öðrum.
Eftir mikið stelpuspjall, quiz, fótboltaturnering, og ýmislegt annað skemmtilegt fórum við út að borða á Olive, Mejlgade. Enn meira stelpuspjall.. vorum 19 og því nóg að slúðra.
Enduðum á kariokebar niðri í bæ þar sem Mary steig á svið.
Sýndist Mary njóta sín í botn þrátt fyrir að hún væri hálfveik. Hún hélt að hún væri að fara á Star Wars um kvöldið með mannsefninu. Þaaaað er svo gaman að koma fólki á óvart.
Jæja, hins vegar er ég búin gera nánast ALLT í dag. Fá mér tannlækni og panta mér tíma hjá honum. Ná mer i frikort og skattkort a skattstofuna i fjarhusinu, bankast og eg veit ekki hvað og hvað.
Síðast en ekki síst er ég búin að fara í kirkjuna, kveikja á kerti og fella nokkur falleg minningartár. Í dag hefði mamma orðið 44 ára og ég sakna hennar enn mikið. Mér finnst þetta góð leið til að minnast hennar þó ég sé ekki trúaðasta manneskja í heimi.
Róleg helgi framundan. posted by xxx @ 16:17
