Að blogga eða ekki blogga...
Sit hérna á byrjun næturvaktar. Var á kvöldvakt en þar sem önnur næturvaktin gat skyndilega ekki mætt var ég plötuð til að halda áfram. Sem er allt í lagi. Auka peningur getur alveg komið í staðinn fyrir smá svefn.
Sumarið er búið að vera æði pæði. Tvær vikur þangað til ég fer út aftur og ég bæði hlakka til og langar að sleppa því. Það er skrítin tilfinning. En svona er að lifa tveimur lífum, sem bæði eru alveg hreint ágæt.
Síðustu vikur hafa liðið með látum.
Og ætli restin geri það ekki líka.
*Hef hitt ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki og átt með því góðan tíma á löngum íslenskum sumarnóttum (jájá, hinir hlutar sólarhringsins hafa líka verið frábærir). Ég hef hins vegar kynnst næturlífinu vel.
*Einn og einn stalker sem ég hef átt í gegnum tíðina hafa komið fram í dagsljósið. Það hefur bæði verið ánægulegt og creepy.
*Ég hef notað þó nokkurn klukkutímann í ræktina og nú er ég svei mér þá farin að geta hlaupið og hlaupið og hlaupið og hlaupið. Nú já og lyft heilu tonnunum. Ég hef alveg kraftana á það. Það líður í raun og veru ekki sá dagur án þess að ég kíki á kjötmarkaðinn í Laugum. Og ef ég geri það ekki er ég eirðarlausari en laufblað í vindi.
*Kleif Esjuna án þess að fótbrotna. Skemmtilegt að rifja upp gömul kynni. Ætlunin er samt sem áður að ná annari ferð áður en ég fer heim.
*Grill.. veðrið hefur alveg verið til þess :)
*Þjóðhátíðina hélt ég hátíðlega á götum Reykjavíkur og það var einstaklega áhugavert og skemmtilegt. Nánast engar raðir. Mátulega mikið fólk inni á skemmtistöðunum. Nú og allt skemmtilega fólkið í bænum! (aka ég og Halla..ikke?).
*Kynnst mikið af nýju fólki-það er líka skemmtilegt. Eitt af því skemmtilegasta sem ég geri.
*Vinna. Nóg að gera. Margar aukavaktir. En guð hvað ég er sátt við (tja svona á vissan hátt) að ég ákvað ekki að læra hjúkrunarfræði. Held líka að ég vilji ekki verða öldrunarlæknir. Það eitt að geta sagt það segir mér að ég hafi fengið heilmikið út úr þessu sumri mínu hérna. Samstarfsfólkið mitt hefur líka verið æðislegt. Mjög heppin með það, því það er sko engan veginn sjálfgefið!
*Þú ert bara bátur.
*Ég tala bara dönsku því maðurinn minn er danskur. -Ha? Tala ég bara dönsku? -Faðir vor þú sem ert á himnum helgist þitt nafn til komi þitt...
*Hitti manneskju úr fortíðinni. Það var ótrúlega gott og mér þótti mjög vænt um þann tíma sem við áttum. EN það hreyfði líka við sjálfri mér á hátt sem ég hafði ekki búist við. Ég veit í það minnsta afhverju ég reyndi svona mikið að láta hlutina ganga á sínum tíma. Þess vegna þurfti ég að taka mig taki og hugsa mjög rökrétt til að láta hugsanirnar mínar ekki hlaupa með mig í tóma vitleysu. Lærði heilmikið um sjálfa mig. Staður og stund, tilfinningar og raunveruleiki. Fyrirbæri sem oft á tíðum þvælast fyrir hvort öðru og eiga enga samleið.
*Ég hef kynnst mikið af útlendingum í sumar. Kannski vegna þess að mér hefur á vissan hátt liðið sem einum slíkum. Fæ ótt og títt að vita að ég tali með hreim. Finn líka sjálf hversu lituð ég er orðin af dönsku samfélagi.
Mér finnst hundleiðinlegt *Hvað allt er heeeeelvíti dýrt
*Að það séu ekki til dósaendurnýtingarsjálfsalar
*Að það sé ekki gert meira ráð fyrir hjólum
í umferðinni
En hins vegar finn ég líka fyrir því hversu mikill íslendingur ég er. Ég elska sundlaugarnar, fjöllin, skyrið, maltið og hversu lítil bæjarsamfélögin eru (jjjjaaa eins mikið og mér er illa við það stundum, það eru takmörk fyrir öllu!).
Annars er ég á fullu að kynna mér Asíu því hugmyndin er að fara í ferðalag þessa tvo mánuði sem ég verð í fríi á næstu önn. Er mikið að pæla í Thailandi, Laos og Vietnam ef ég næ yfir þessi þrjú lönd á þeim tíma. Búin að lesa mér svolítið til en er ekki búin að kaupa neina flugmiða enn sem komið er. Er samt sem áður alltaf að verða heitari og heitari fyrir þessu. Ég meina "Queen of Asia" sounds very gooooood;)
Ég elska rigninguna sem er úti núna. Hlakka til að fara heim í morgunsárið, skríða undir sæng, sofa eitthvað frameftir degi og rölta svo í matarboð til Úllu.
tata... posted by xxx @ 01:45
