KV 066
Oft á tíðum leiðist mér alveg óskaplega að gera praktíska hluti. Hluti sem þarf að gera og hluti sem "semiþarf" að gera. Praktískir hlutir eru til dæmis að fara í bankann, hlaða símann(hversu auðvelt er það? En það er ástæða fyrir því að ég verð svona oft straumlaus), jæja eða hreinlega að svara í símann-ef símtalið á að snúast um eitthvað praktískt, hlaða og skipta um lög á Creative spilaranum mínum, versla inn, raða fötunum mínum inn í fataskápinn, raða glósunum mínum (aðalástæðan fyrir því að ég hreinlega geri ekki glósur!!), búa til lesplön, redda hinum ýmsu pappírsmálum og tölvumálum, tja og þrífa bílinn minn svo eitthvað sé nefnt. Ætli ég verði ekki að minnast á að ég verð rosalega brjáluð í skapinu ef það er ekki röð og regla í kringum mig. Ég get hins vegar hummað aðstæðurnar fram af mér með því að halda þeim í fjarlægð. Gera þær ósýnilegar. Enda snýst engin þeirra um líf og dauða :)
En í dag var dagur daganna. Fékk óvæntan frídag svo ég gerði allt það sem ég hefði þurft að gera í sumar því núna eru jú eingöngu 2 vikur eftir af sumarfríinu mínu og seint að verða í rassin gripið. Jájá ef svo má að orði komast.
Ég þeystist því út um allan bæ og gerði allt sem gera þurfti. Auðvitað alveg ógeðslega stolt af sjálfri mér. Þar sem ég var byrjuð að vera svona fullkomin og með hlutina á hreinu ákvað ég að gera eina af "semiþörfunum" og það er að þrífa bílinn minn hann Mjása.
Lítill 17 ára gamall hvítur colt. Ofboðslega sætur. Hef átt hann í 7 ár held ég.Nú ég dólaði mér út í olís hérna við Ægissíðu. Henti mér á milli tveggja stórra jeppa með látum og byrjaði að skrúbba. Reif golfmotturnar úr bílnum og bónaði þær, eða því sem næst?! Auðvitað var ég með creative spilarann minn í eyrunum (við skulum muna það að í róttækniskastinu mínu í dag skipti ég um tónlist á honum) og heyrði ekki shit þegar fólk reyndi að yrða á mig heldur dillaði mér í takt við þessa dásamlegu tóna. Þegar strákurinn við hliðina á mér var búin að spyrja mig þrisvar sinnum (að ég held) hvort ég vildi skipta um pláss við hann svo ég gæti ryksugað bílinn minn og hann þvegið sinn jánkaði ég því líklega heldur hátt og dansaði með bílinn minn út í ryksuguhornið. Þetta tók sinn tíma því ég er með ágætis eyrnalokkasafn á milli framsætanna (svona ef ske kynni) og snyrtivörusafn í aftursætinu. Þess vegna myndaðist ágæti JEPPAröð fyrir aftan mig.
Mér leið eins og tjaldinu á milli hjólhýsanna. Að sjálfsögðu mundi ég eftir að setja á mig varagloss og maskara. Ætli það hafi ekki verið þess vegna sem þessir jeppakallar sýndu mér svona mikla þolinmæði ;)
Að lokum trítlaði ég inn á bensínstöðina og ætlaði að kaupa svona góða lykt til að setja á baksýnispegilinn. Ég leitaði út um allt einhverri lykt og einhverju skrauti sem hæfa myndi Mjásanum mínum. Bíllinn minn er enginn klámmyndastjarna og þaðan af síður ég sjálf. Ég er heldur engin fiskveiðimanneskja eða fótboltafan. Ekkert hæfði Mjásanum mínum. Svo ég dró upp Naomi Cambell ilmvatnið mitt og spreyaði á gamla ilmspjaldið og þar með setti ég punktinn yfir iið.
...hnuss (!!), bílaþvottur er algjörlega stílaður inn á karlþjóðina! posted by xxx @ 01:18
