Annar í þynnku!
Ég lét að lokum undan fortölum Lindu og skellti mér á ball með henni á mærudagana á Húsavík. Ætli ég hafi ekki djammað fyrir allt sumarið þetta kvöld. Hef ekki gefið mér tíma í það hingað til þar sem ég hef verið niðursokkin við lestur á hinum ýmsu bókmenntum, aðallega íslenskum skáldsögum. Ég hitti elsku Hulduna mína, Sigurveigu og Hilmar, Láru Sóley og svo nottla gamla Húsvíkinga og bekkjarfélaga. Djammaði reyndar líka með systkinum pabba en þau voru þarna á stangli. Það var góð upplifun. Það var alveg ágætt. Þemað þetta kvöld hjá mér var að faðma fólk og nota skrítin orð…. Orð sem voru í Da Vinci lyklinum en þá bók er ég einmitt nýbúin að lesa. Það var svo troðið að það var ekki viðlit að reyna að dansa þarna. Gerði mitt besta samt. Undir lokin var ég bæði orðin þreytt og vitlaus. Ekki frásögu færandi. Vona bara að ég hafi ekki ruglað of mikið… en það á ég til. Ég byrjaði á því að plata Jónu til að taka bakvaktina fyrir mig. Svo ákvað ég að dusta rykið af gömlu gelgjunni minni og eyddi miklum tíma í að velja mér föt fyrir kvöldið með hjálp ömmu. Nú svo skellti ég mér á tjaldstæðið því Linda var að vinna til 23:00, málaði hana og opnaði fyrsta bjórinn. Hann var góður. Klukkan 23 þrumuðum við í bæinn og komum mátulega á flugeldasýninguna. Nú svo fórum við á Baukinn á The Heffners.....(held ég að þeir heiti) en það er húsvísk hljómsveit. Það var troðið út úr dyrum. Mismæli kvöldsins átti ég. Ég rak augun í Helenu, frænku hennar og Árdísi á bryggjunni en þær voru líka að fara á ball. Ég sat þá á bryggjuhandriðinu á stéttinni með bróður mínum. Auðvitað vildi ég kynna kellurnar fyrir bróður mínum (hann er á lausu eftir því sem ég best veit) svo ég benti á hann og sagði "þetta er bjórinn minn". Og þá var klukkan ekki nema að ganga tvö. Þið getið ímyndað ykkur restina af kvöldinu. Heimferðin er mjög óljós í minni, en ég komst þó alla leið í Vesturdalinn um 6 eða 7 leytið og gat lagt mig í 2 tíma. Þegar leið á daginn fór þynnkan að gera vart við sig og ég dúndraðist út af klukkan 21. Í dag er líðanin skárri, ákvað að skella mér í brunch klukkan 10 til Ísaks hérna í sjoppunni. Brunchinn samanstóð af hamborgara og stórri kók.... finn að þynnkan er að líða úr mér... þar sem ég er mætt í vinnuna og farin að glíma við útlendingana á svæðinu. En þá er stefnan tekin á Reykjavík á föstudaginn… hlakka mjög mikið til.
posted by xxx @ 13:12
