Allt og ekkert
Þá er ég búin að fara rússíbanann upp og svo aftur niður. Fullkomið jafnvægi. Svona rússíbanar eru hressandi. Hrisssta vel upp í manni. Gott,gott. Ég hafði gott af því. Svo er það sushikvöld hjá Diljá. Í góðum stelpnahóp. Það er líka hressandi.
Komin bara í massagírinn. Ætla mér að drepa þessa kemi og fysiologi. Ekkert væl lengur.
Mikið pælt í því að ég nota orðin leiður,fullur,þunnur og þreyttur alltaf í karlkyni þegar ég tala um sjálfa mig. Hef gert það í mörg ár. Hef meira verið að taka eftir því sl mánuði þar sem ég hef "neyðst" notað þessi orð mikið. Vert verkefni fyrir sálfræðinga. Dulin kvenremba...?
Fékk vafasamt hrós í gær. Maðurinn sem er með mér á önn í læknisfræðinni vildi í það minnsta að meina að það væri hrós. Sagði að ég væri eins og aktionspotentiale (hvað heitir þetta á ísl..hm..skilji þeir sem skilja geta) um mig gilti "allt eða ekkert" reglan. Sagði að aktionspotentaler væru mikilvægir. Jájá. Ég er öfgamanneskja.
Og úr einu í annað og út aftur.
Knús. posted by xxx @ 11:29
