fimmtudagur, júní 23, 2005

Ammli, nærföt og sankt Hans

Afi og Siffi frændi áttu afmæli 8.juni (geri ekki ráð fyrir að þeir stingi nefunum sínum hingað inn), Berglind Rut 9.júní, Heiða 10.júní, brósi og Kristín Péturs 21.júní, held að Kolla Eva eigi afmæli í dag og Jóna Árnýin mín á ammli á morgun, 24.júní og Mía mín líka. Til haaamingju!!!

Það er 25 stiga hiti í dag og ég er að leka niður. Fór í H&M og keypti mér fullt af nærfötum. Já svona hefur nú hitinn áhrif á mig.

Annars var ég að fylgja pabba á lestarstöðina en hann er að fara til Íslands í dag. Það hefur verið best í heimi að hafa hann hérna. Camma vinkona mín var akkúrat að vinna sem kaffidama í lestinni sem hann tók og hún lofaði mér að passa aðeins upp á hann. Hihihihi.

Annars er "sankt hans" dagurinn í dag... dularfullur dagur sem danir halda upp á. Þeir kveikja bál og brenna einhvers konar líkan af norn. Svo las ég í blaðinu að "sankt hans" væri í raun og veru Jóhannes skírari og þetta væri fæðingardagurinn hans og þar af leiðandi tengist dagurinn kristinni trú. Hm... skil ekki alveg tenginguna þarna á milli. Ég ætla í það minnsta að skella mér í háskólagarðinn í kvöld með Mikaeli og brenna eitt stykki norn. Virkar spennandi.

Knús frá mér

posted by xxx @ 16:59