Fóstur finnst í strák...
Læknar í suð-austur Asíu hafa uppgötvað tveggja kílóa fóstur í sextán ára strák þarna eystra eftir að drengurinn kvartaði undan magaverk. Fóstrið hafði víst verið þarna alla hans hunds og kattartíð en hafði þróast yfir í æxli með tímanum.
Samkvæmt doktorunum var fóstrið tvíburi stráksins sem hafði eitthvað orðið utanveltu og var með fullþroskaða útlimi, hár og neglur. Þetta er víst ekkert einsdæmi því svipað atvik átti sér stað árið 2003.
Íbúar staðarins flykktust að spítalanum sem strákurinn var lagður inn á því sá orðrómur fór af stað að hann hefði eignast barn. Spurning hvort þetta sé sami gaurinn og fór á túr?
Er ekkert sem við stelpurnar megum hafa í friði??
Tekið af www.beygla.is posted by xxx @ 17:16
