laugardagur, júní 25, 2005

..og hvað svo?

Og enn heldur ógeðslega góða veðrið áfram. Hitinn náði 30 gráðum í gær og ég sofnaði úti í garði með Dan Brown (Englar og djöflar) yfir hausnum. Tjah.. náði þó allavega smá lit á maga og fótum ; )Ég er að springa úr hamingju yfir öllu þessu góða veðri.
Ég er byrjuð að vinna. Er að vinna við heimahjúkrun á Viby Lokalcenter. Hjóla á milli íbúða aldraðra og fatlaðra. Var yfir mig stressuð yfir dönskunni, að þetta myndi ekki gera sig fyrir mig. Ég þarf nú alltaf að gera úlfalda úr mýflugu. En þetta gengur bara dúndurvel. Er að finna mig mjög vel í þessu starfi. Tilbreyting frá því að vera innilokuð á hjúkrunarheimili eða að gæda í þjóðgarðinum. Get samt ekki sagt annað en að ég sakni þjóðgarðarins pínulítið. Söknuðurinn segir samt minna til sín þegar ég les mbl.is og hitastigið á norðausturhluta Íslands undanfarið. Hjálpar roooosa mikið upp á heimþrána. Sem sagt ég hef það bara fínt!! :)
Vinnuhelgi hjá mér þessa helgi og imbinn í kvöld. Rólegheit. Æji það er svo gott inn á milli.

posted by xxx @ 20:49