mánudagur, júní 27, 2005

Ég veit að

ég er í einhvers konar kreppu þegar ég
-er að deyja úr kvíða yfir því að gera plan fyrir sumarið því ég er svo hrædd um að verða stressuð þegar ég sé að sumarið er ekki nógu langt (og þess vegna eyði ég deginum í að gera ekki neitt í stað þess að gera bara þetta skítaplan)

-fer að hágráta eftir að hafa lesið minningarsíðu á netinu sem ég rakst á fyrir tilviljun (æji kannski er það bara eðlilegt, maður er svo mismunandi viðkvæmur)

-planlegg í huganum interrailið sem ég ætla í eftir 2 ár (nenni ekki að lifa í núinu)

-hef péééningaáhyggjur

-það merkilegasta sem ég hef sagt yfir daginn er "helvítis djöfull"

-er pirruð yfir minnstu smáatriðum, svo pirruð að ég stappa niður fótunum og tárast

-klæði mig í hlaupafötin og fer út í Netto og kaupi mér ís

tjah kannski ekki minn dagur í dag. Frekar ömurlegt þar sem þetta er frídagur...og mig langar ekki að eiga frídag. Ég kann ekkert á þessa fokkin frídaga. Og ég elska plön. Vont að hafa engin plön. Getið kallað mig ruglaða. Og ég er það örugglega.

Bætti inn link hérna lateralt á Sóley.Og svo breytti ég öðrum link þar sem litla óskírða hennar Ásu er víst komin með nafn, Bryndís Laufey. Já og þetta líka fallega nafn.

Best að hætta þessu væli og búa til plön. Ætli næstu dagar fari þá ekki skánandi. Sumum dögum er ætlað að vera pirrandi:)

posted by xxx @ 18:58