Íslenskur hroki? Eða sannleikur?
Bahhh..! Ég var að hlusta á íslenska útvarpið í morgun. Vaknaði snemma við sólina sem skein inn um gluggann á herberginu mínu. Þar var minnst á það að Nylon væru að meika það í Færeyjum. Allt gott og blessað. Nú svo fóru þáttastjórnendur að hlægja. Það búa nú alveg mörg þúsund manns þarna, 55.000 manns. Hahahahah! Þær eru að gera eins og Land og synir í gamala daga. Halda fullt af tónleikum í Færeyjum. Hahaha þeir slógu nú alveg í gegn þar.
Ég brosti í annað. Það er akkúrat þetta sem ég heyri um Ísland hérna í Danmörku. Fæstir muna hvort ég kem frá Færeyjum eða Íslandi (nema auðvitað þeir sem þekkja mig vel)því af einhverjum ástæðum rugla þessi "danafífl" (hnuss) þessum tveimur eyjum saman.
Danmörk er pínulítið land, helmingi minna en Ísland og hérna búa 5 milljónir. Sem sagt ekki svo stór mannfjöldi. Danir gera grín af litla Íslandi (sem þeim finnst reyndar líka spennandi, það er ekki það) og við gerum grín af Færeyingum. Smá vottur af minnimáttarkennd? Goggunarröðin.
Eh, ég er samt sem áður ógeðslega stoltur íslendingur. Ánægð með okkar hreina tungumál (sem minnir á álfamálið í Lord of the rings).Ég er ógeðslega ánægð með að tala tungumál sem svoo fáir í heiminum tala.Getur maður verið annað þegar enskan er að tröllríða öllu? Það að ég sé íslensk er ótrúlega stór partur af mínum karakter. Litli töffarinn ég. Held fast í mínu íslensku drykkjusiði (hvað áfengi varðar...við kunnum ekki að drekka og ég er líklega aðeins ýkt í þeim efnum), dásama íslenskt vatn (og kók og mjólk). Spýti út úr mér orðunum eins og gegnheilum norðlendingi sæmir. Geymi harðfiskinn í rassvasanum. Vegsama hreina loftið með miklu handapati og öndunaræfingum. Ég tala líka mikið um það að Ísland sé á undan öðrum löndum í Evrópu hvað varðar ýmsa tónlist og já frumsýningu á bíómyndum. Því við erum jú í raun á milli Ameríku og Evrópu.Haha. Minnist einnig oft á okkur einstöku náttúru (hef samt passað mig á því tala ekki mikið um þessi mikilvægu mál nema ég sé spurð. Vil ekki láta bera á of miklum rembingi þó að mér sjálfri finnist alveg að hann eigi rétt á sér). Ví hef ðe most bjútífúl vimens ín ðe vorld (and æ am von of ðem, jú nóv) and ðe strondest mén(de islandske kvinder er også meget stærke..se lige her). Ég tala nú ekki um alla frægu íslendingana..svona þegar við miðum við höfðatölu.
Ísland er einstakt. Mér finnst Ísland æði. Þó það sé oft dimmt og kalt. Þó að hitastigið stígi sjaldan sérlega mikið. Þó að við látum smægð okkar bitna á smægð Færeyinga. Þó ég nenni alls ekki að búa þar núna, kannski þegar ég er komin með börn. ...hugsa með mér að í ellinni, já í ellinni verður hvergi betra og búa.
Já svo er Duran Duran bara á Íslandi.
Tja..Jæja. Ætla að taka mig til og fara á ströndina. Svona þegar viss einstaklingur drullast til að hringja í mig og segja mér að hann sé vaknaður.
Tutuuuu posted by xxx @ 09:15
