laugardagur, júlí 23, 2005

bjargarlaus.is

Nú hef ég upplifað hvernig það er að eiga ekki Gsm síma í hálfan dag(já og vera alveg símalaus þar sem ég hef ekki heimasíma). Það ætla ég mér aldrei að upplifa aftur, þvílík skelfing.

Ég er einstaklega lagin við að týna hlutum, til að mynda símum, lyklum og alls konar smáhlutum. Yfirleitt finn ég þá aftur í ísskápnum, já það vill svo furðulega til að ég hef mikla tilhneygingu til að troða hinu og þessu í ísskápinn, eða inni á baðherbergi.

Eftir að hafa velt hálfum árósum við, grenjað heima hjá Mikaeli í 4 tíma en ég fór heim til hans og vakti hann í skelfingu minni(ég var svo einmana án símans)og búin að opna heimasíðuna hjá cbb.dk til að panta nýtt símakort blasti síminn við mér á ofninum.

Ég var handviss um að hann hefði dottið úr bakpokanum mínum.

Í þessum hrakförum mínum lenti ég líka í smá ævintýri þegar var að bíða eftir strætó á leiðinni heim frá Mikael. Ég hafði víst lesið eitthvað vitlaust á strætótímana svo ég þurfti að bíða eftir strætó í 20 mínútur. Við hliðina á mér settist strákur um tvítugt (jájá,bara nokkuð sætur)og segir mér frá sprengingunum í Egyptalandi.Hann sagðist vera frá Íran eða Írak. Náði því ekki alveg en hann hafði í það minnsta búið í DK í 6 ár. Það stoppaði ekki á honum munnurinn meðan við sátum og biðum eftir strætó. Aðalumræðuefnið voru sprengjur og terroristar. Að Danmörk yrði næst í röðinni. Hann hélt áfram þegar inn var komið í strætóinn.
Hjartað mitt var farið að slá heldur ört þegar ég loksins kom á mína stoppistöð og gat hlaupið út úr strætóinum. Var farin að ímynda mér að hann hefði sprengju í skónum eða eitthvað. Ekki gerði hann mig rólegri með því að tala um hversu lítil gæslan væri hérna í Danmörku og enginn væri tjékkaður. Það runnu líka á mig tvær stórar og miklar grímur þegar hann tjáði mér að hann væri ekki hræddur við dauðann því einhvern tímann myndu allir deyja.

Þetta er búinn að vera hinn furðulegasti dagur og klukkan er bara 18. Ég sem á eftir að fara í bæinn í kvöld, jahérna hér. Veit ekki hvernig þetta endar.

posted by xxx @ 17:27