mánudagur, júlí 18, 2005

Sleeping forever in a bubble of blue, would you like to see her point of view?

Nýliðin helgi var góð, ein af þeim bestu sem ég hef upplifað í sumar, með strandahelginni miklu, þar sem ég brann brunanum mikla. Ég fór í bíó á föstudeginum. Reyndar ekki á myndina sem mig langaði að sjá því strákunum fannst hún ekki hljóma spennandi. Hrpfh. Þannig að ég endaði með að fara á Steven Spielberg myndina "War of the worlds". Mér fannst hún góð. En ég er dyggur aðdáandi stórslysamynda. Mæli alveg með henni. Kvaddi strákana fyrir utan bíóið og rölti Jægergårdsgade, keypti mér pizzu á D´s og hjólaði heim. Ótrúlega fallegt kvöld. Mitt helsta tómstundagaman er að brosa til fólks á förnum vegi. Veit ekki afhverju en eitthvað fæ ég út úr því fá brosið endurgoldið. Hef spottað út týpurnar sem gefa af sér til baka. Tók upp á þessu snemma á gelgjunni þegar ég uppgötvaði hvað bros frá ókunnugri manneskju gat hresst mig við í grámyglu hversdagsins og fengið mig til að finnast heimurinn betri. Örlítið betri. Þið getið kallað mig skrítna. Restinni af kvöldinu eyddi ég með Edward Furlong í sjónvarpinu (Terminator II) en hann var einmitt fyrsta ástin mín. Margur dagdraumurinn fékk að innihalda hann í stórum skömmtum á aldrinum 11-12 ára.
Laugardagurinn var rólegur; vinna,langt stelpuspjall við ömmu í símann, Mikael, thaimatur og bíómynd. Eftir vinnu á sunnudeginum fékk ég að upplifa örlitla úthátíðarstemmingu á "Grøn Koncert" hérna í Árósum. Umvafin í grænt teppi með bjór í hönd og í ótrúlega skemmtilegum félagsskap fannst mér lífið fallegt. Þennan dag varð ég ástfangin af Tim Christensen(fyrrverandi söngvara Dizzy Mizz Lizzy). Hrifnust varð ég samt þegar hann tók gömlu lögin með Dizzy Mizz Lizzy; Silverflame etc. Tókst líka nokkurn vegin að dilla mér í takt við gömlu kallana í TV2 með mannfjöldanum. Þegar ég skreyddist heim um kvöldið með krullaðasta hár í heimi (það ringdi öðru hverju) og rauð augu fannst mér ég hafa átt fullkomna helgi.

posted by xxx @ 14:13