Bikiní spikiní
Ég er brunarúst. Nota solfaktor 50, sef nakin með lak í stað sængur. Drekk þrjúhundruð lítra af vatni á dag og svitna eins og svín í vinnunni.
Það er þessi bongóblíða alltaf. Eitthvað sem ég er ekki vön. Kulsækin manneskja eins og ég sem drekkur vanalega þrjúhundruð kaffibolla á dag, sef með tvær sængur(og önnur þeirra er dúnsæng) og dúðuð í náttföt og sokka. Yfirleitt hvít eins og næpa síðan ég hét sjálfri mér því að fara aaaldrei í ljós aftur. Hef síðan þá verið að safna hvítu. Og hefur það gengið glimrandi vel.
tjah vinnan búin í dag. Búin að skoða "fréttasíður" vina, vandamanna og vinabarna. Skelli mér í kalda sturtu og í bikiníið. Það er ekki verandi í öðru í þessu brjálaða veðri.Úúúúúút í sólina. posted by xxx @ 14:10
