föstudagur, júlí 15, 2005

Svefnengill og lausir kjálkar

Á síðasta miðvikudag kom ég heim eftir vinnu og ætlaði mér að glugga í bækur. Settist fyrir framan tölvuna, las fréttir eins og ég er vön og slökkti svo. Leit aðeins yfir lungnakaflann og ætlaði að hefja lesturinn þegar ég fann að ég var þreytt. Drulluþreytt! Ég hugsaði með mér að ég gæti nú lagt mig í einn tíma og hafist svo fokking handa við að lesa. Fleygði mér upp í rúmið mitt góða sem ég á í einstaklega þakklátu og góðu ástarsambandi við og lauk (haha?) aftur augunum. Sveif inn í draumalandið með það sama. Þegar ég rumskaði næst við mér fannst mér orðið heldur mikið rökkur í herberginu mínu. Leit á klukkuna og sá að hún var tólf að miðnætti. Geispaði stórum geispa, klæddi míg úr fötunum, sneri mér á hina hliðina og hélt áfram að sofa. Annað orkaði ég ekki að gera. Svaf til klukkan 8 næsta morgunn. Ég svaf sem sagt í 16 tíma, nánast slitrulaust. Rumskaði rétt við einhver sms sem ég fékk en annars svahahahaf ég. Aldrei upplifað svona svefnlæti í mér áður. Hef ekkert erfiðað sl daga. Fengið alveg sæmilegan svefn. ??? Stend enn á gati yfir þessum mikla svefnþurfti. Ég var í matarboði í gær og kom pínu ölvuð heim. Ekkert að ráði samt en nóg til að maður fær ekki gullsvefninn sinn. Það fyrsta sem ég hugsaði í morgun þegar ég vaknaði var að ég hlakkaði til að leggja mig eftir vinnu. Þegar ég hugsaði mig betur um fannst mér það ekkert sniðugt. Áður en ég veit af verður lífið mitt eingöngu farið að snúast um svefn og vinnu. Því nenni ég ómögulega svo ég ætla ekkert að vera að leggja mig. Glugga eitthvað í bækur því það er ekki spikiníveður þessa stundina.

Ég er þreytt í eyrunum í dag. Í vinnunni átti ég að þrífa fyrir eina vel mælska manneskju. Hún talaði endalaust. Byrjaði um leið og ég dinglaði dyrabjöllunni og svo hélt hún áfram meðan ég ryksugaði, þurrkaði af, fekk mér kaffi með henni og á meðan ég labbaði niður tröppurnar hjá henni á leiðinni út úr húsinu. Heyrði enn óminn af rödd hennar þegar ég hjólaði burt. Úff. Vona að ég hafi sagt "Já" og "Nei" á réttum stöðum.

Ég er mikið að pæla í því að kíkja í bíó í kvöld. Krækti mér í það minnasta í þessa fínu tvo bíófélaga í gær. Ég er bara mikið að pæla í hvort ég eigi ekki að sjá Mr. & Mrs. Smith með Jolie og Pitt. Ég er jú Jolie fan og svo verð ég eiginlega að sjá hvað það var sem rústaði sambandinu þeirra Aniston og Pitt. Æjh hver stenst svo sem Angelina Jolie...hver gerir það?

posted by xxx @ 14:06