miðvikudagur, júlí 27, 2005

Update

*Laugardagurinn endaði að sjálfsögðu frekar skringilega. Allt í samræmi við fyrrhluta dagsins. Sigldi inn í sunnudaginn í kolvitlausum aðstæðum. Freysi og Brynja komu í pizzu, gott mál. Ragnar, Matti og Hjörtur kíktu bjór, gott mál. Allan kíkti í whisky, vodka og rauðvín, ágætis mál. Svo töltum við í bæinn með hjálp frá einni af 15 kvenntaxabílstjórum í Árósum-heppin (jújú ég spurðist fyrir).

*Ógisslega gott kvöld með fullt af íslenskri tónlist

Allt var þetta gott og blessað!

*Í bænum hitti ég náunga sem var heldur betur hress. Svo hress að hann hafði ekki rænu á að heilsa upp á vini mína. Svo hress að hann komst ekki inn á einn einasta skemmtistað þar sem hann var svo upptekinn við að æla. Hann var ekki fyrr kominn inn en hann þurfti að skella sér út aftur til að kasta upp -hrikaleg sjóferð alveg hreint.

*Komin heim fyrir klukkan þrjú þar sem viðkomandi faðmaði klósettið mitt eins og það væri amma hans.

*Þessi náungi er ekki ég. Og það er einmitt það sem gerir endinn á laugardeginum súrsætan.

*Langar að þakka öllum nema náunganum fyrir kvöldið. Honum langar mig hins vegar að þakka fyrir daginn eftir þegar hann var búinn að ná sér eftir þynnkuna :)
Gott að náunginn skilur ekki bloggið mitt.



Annars er ég að vinna um helgina, finnst ég alltaf vera að vinna um helgar. Péningar.

p.s. Hey "K"! Þú sem þekkir mig 90% (blekkir mig ekki!) Þú veist vel að ég hef aldrei unnið við fiskvinnslu....lofaði sjálfri mér því þegar ég var pínulítil. Bara til að vera öðruvísi en allir aðrir í fjölskyldunni. Langaði að senda þér lítð bros, svona yfir hafið bláá hafið og vona innilega að þú hafir það gott :)

posted by xxx @ 20:18