mánudagur, ágúst 01, 2005

Draumavitleysa og BArnarinn heimtur úr Afríku

Geiiisp! Mikið er ógisslega gott að sofa svona út. Dreymdi furðulegan draum. Ég var að keppa í maraþoni á Húsavík. Við máttum velja á milli þess að vera á hjólum og tveimur jafnfljótum. Ég byrjaði á þremur mismunandi hjólum en öll eyðilögðust þau á fyrstu 500 metrunum. Ég ákvað því að hlaupa. Mér fannst það ganga svo hægt. Ekki sátt. Stoppaði í íþróttahöllinni í miðju hlaupi og fór í sturtu ásamt fleiri keppendum. Löggan á staðnum og allt að leita að ólöglegum efnum. Ég var alveg brjáluð yfir því að einhver stal sjampóinu mínu og kærði það til lögreglunnar. Var viss um að einhver væri að reyna að seinka mér í maraþoninu. Ég tek vanalega mark á draumum. Pæli alveg í þeim. En þesssi...þesssssi. Var fáránlegur.

Vaknaði við fuglasöng frá símanum mínum. Er nefnilega að endurheimta BArnarinn minn frá Afríku. Og ekki bara lifandi, líka heilum og ómeiddum. Frétti líka fyrir helgi að hann komst inn í hjúkkuskólann hérna í Aarhus. Ekki slæmt. oohhhh hlakka svo til að fá hann hingað. jeiiij.

Gúddi frændi á ammli í dag! Man það alltaf. Bara af því að hann var síðasta barn ömmu og afa. Þau voru uppiskroppa með nöfn. Hann fæddist 1. ágúst! Nú þá fékk hann nafnið Ágúst. Veit nú ekki alveg hvort sagan er svona, en þetta hlýtur samt að vera erfitt þegar fólk eignast 11 börn!! Allt þetta nafnaval. Gúddi er sem sagt orðin 32 ára.

posted by xxx @ 11:30