þriðjudagur, ágúst 09, 2005

Leti

Jahjarnahjer! Hversu mikið er hægt að liggja uppi í rúmi yfir eina helgi spyr sá sem ekki veit. Ég veit!! Og þarf ekki að spyrja. Rólegasta helgi sem hægt er að hugsa sér.Sú rólegasta og latasta sem ég hef nokkurn tímann upplifað. Rétt fram úr rúminu til að fara tvo tíma í partý,leigja dvd, til að fara á klóstið og til að borða.. tja eða að sækja eitthvað að borða. Úff. Hversu óaktívur getur maður verið?

Það lítur úr fyrir að ég sé að fara til þýskalands á fimmtudaginn. Aldrei farið yfir landamærin. Gæti verið gaman.

posted by xxx @ 14:18