Núna..
..er Arnar búinn að yfirgefa mig enn og aftur. Litli prakkarinn. Í þetta skipti er hann farinn til Íslands. Gott að hafa hann í heimsókn. Hann töfrar oft á tíðum eitthvað gómsætt fram a la mamma hans. Það kann ég vel að meta. Takk fyrir heimsóknina Arnar.
.. eru ekki nema 13 dagar þangað ég stíg fæti mínum á íslenska grund. Hef ekki verið á klakanum í næstum 9 mánuði. Vona innilega að hann taki vel á móti mér. Stefnan er tekin á menningarnótt á laugardeginum en annars ætla ég að nota helgina í að hitta eitthvað af þessum perlum sem ég á á höfuborgarsvæðinu. Trítla svo norður í faðm fjölskyldunnar. Mmmmm! Ég er farin að hlakka til.
..er ég komin í helgarfrí. Vetiggi alveg hvað ég ætla mér að brasa um helgina.Vonandi eitthvað gáfulegt!! Er að endurheimta Mikaelinn í dag en hann hefur verið að vinna á einhvers konar sumarbúðum fyrir börn einhvers staðar úti í danskri náttúru. Ætla mér að eiga stefnumót við kauða í kvöld og ef til vill kíkja í eitthvert party. Ohhhh hlakka til að sjá hann.
..er tölvan mín komin í gott ástand. Bauð Allan í Irish Coffee í gærkvöldi og maðurinn hristi vírusvarnir, eldveggi og dvd forrit fram úr ermunum og kom Önnu í form. Það er aðeins eitt eftir, en það er að finna nýjan straumkapal í tölvuna mína en mér tókst að brjóta innstunguna á honum sl jól. Heyrist Allan vera að vinna í þeim málum. Æji það er svo gott að eiga góða vini. Og ekki er það verra þegar þeir kunna eitthvað fyrir sér því ekki er það mikið sem ég kann fyrir mér..eh.
..er ég búin að setja upp hyllur í herberginu mínu. Í fyrradag þræddi ég jysk, bilka og Ikea til að finna ódýrar hyllur sem ég get notað þangað til ég finn eitthvað sem mig langar í. Fann skapnaðinn í Ikea, tók strætó niður í bæ með heila klabbið og labbaði svo restina. Ég þarf sko engan bíl..æji sakna samt Mjása inn á milli.
..ætla ég að skella mér í sturtu og koma mér í helgargírinn. Það er aldrei jafnskemmtilegt að velja sér föt og mála sig en eftir vinnu á föstudegi. Þá finnst mér ég svo fííííín og þá er komin helgi.
Góða helgi. posted by xxx @ 14:19
