föstudagur, ágúst 20, 2004

5 daga helgi

Jæja þá er ég komin á Norðurlandið aftur eftir laaanga góóða helgi. Spændi inn á Akureyri strax eftir vinnu sl föstudag og henti mér inn í flugvélina sem bar mig til Reykjavíkur. Þar tók Krissinn minn á móti mér og við þrusuðum til Lauga í Sælingsdal á ættarmót. Þar var glatt á hjalla og mikið djammað. Kannaðist ekki við eitt andlit á svæðinu sem kom mér nokkuð á óvart því þetta er Ísland og ég tel mig sjóaða í andlitum íslendinga. Varð að sætta mig við það að í þessari ætt Krissa var ekki sála sem ég tengdist á nokkurn hátt...nema í gegnum Krissa. Heyrði meira að segja út undan mér að ég væri útlendingur.. suss þetta sunnanfólk, aldrei séð norðlending áður. Já sólin hefur haldið sig fyrir norðan í sumar. Á sunnudaginn þurfti ég að díla við eina verstu þynnku sem ég hef komist í tæri við. Morning fit OG alka seltzer slógu ekki á kauða. Dominos og kók róaði mig þó nokkuð og ég var komin í gott lag eftir 3 tíma svefn.
Við fórum á bíómyndina “The Village” en mér þótti hún svona allt í lagi, ágætis pæling á bak við myndina en enginn thriller. Krissa fannst hún leiðinleg. Við fengum okkur humar á Stokkseyri, veitingastaðnum Fjöruborðinu, nammi namm. Mér finnst humar góður. Annars slakaði ég mikið á og hafði það gott. Náði vísu ekki að hitta Hulduna mína nema í einhverja 2 tíma þar sem skedjúlarnir okkar voru ekki gera sig. Það var leitt. Kom í vinnuna í gær og fór í lokahóf hérna í Ásbyrgi í gærkvöldi þar sem við grilluðum fram ótrúlegar krásir og drukkum rauðvín með í boði Kára (einn af bossunum mínum) það var hreint út sagt huggulegt. Gott að hitta fólk undir aðeins öðru yfirskini en vinnunni.

Er þreytt í dag en er að tjúna mig upp með kaffi. 5 dagar eftir í vinnunni og 9 dagar í Danmerkurför. Nettur kvíði og tilhlökkun í bland. Verður þetta ekki bara góður vetur? Er að flytja í nýja íbúð með 2 “nýjum” vinkonum mínum. Þeim Guðnýju læknanema og Sillu arkitektúrgellu. Íbúðin er svo til niðri í bæ og mér er tjáð að hún sé ógisslega flott. Hef ekki séð hana enn. Ræktin með Freysa og jóga með Guðnýju. 3.önn auðveld og mikið djamm. Er það ekki málið? Að kynnast einhverju öðru en bókunum í vetur? Eftir strembinn síðasta vetur. Klíník á sjúkrahúsinu í Viborg. Skoða bæinn sem mun verða heimilið mitt næstu 5 ár. Æjú þetta verður fínt.

posted by xxx @ 13:13