föstudagur, ágúst 13, 2004

Hærð og brædd

Ég er að bráðna úr hita. Þar sem ég hef verið að safna hárum á löppunum sl 2 vikur get ég ekki fyrir mitt litla líf komið mér fyrir í stuttbuxum. Er að fara í vax á mánudaginn í Reykjavíkinni. Hugsið ykkur hversu gistinæturnar hérna á tjaldstæðinu yrðu miklu færri ég ég flaggaði hærðu leggjunum mínum.. jú jú þeir eru glæsilegir eins og þeir eru.. en þeir hafa séð fífil sinn fegri. Skil ekki hvernig mér hefur tekist að þrjóskast við því að munda raksköfuna í þessari hitabylgju. Er nú svo sem þekkt fyrir að bíta á jaxlinn. Ég er að fara suður eftir 2 tíma. Búin að pakka niður, þrífa bílinn (get ekki keyrt langar vegalengdir í skítugum bíl.... aksturinn hjá mér verður halffatlaður) og nú sit ég og bíð INNANDYRA, þar sem það er ólíft úti, og bíð eftir að fá grænt ljós frá Erlu fyrir því að fá að leggja af stað.. flug kl 18. Ég vona að það sé að minnsta kosti svöl gola í Reykjavík... og ... ekki þessi andskotans 25 stig eins og hér.

posted by xxx @ 16:41