miðvikudagur, mars 09, 2005

Kalt vatn

Ég er svo hamingjusöm þessa dagana. Og það besta við það er að ég hef ekki hugmynd um afhverju. Kannski er það af því að snjórinn er að fara og mér finnst ég finna vor í loftinu. Ég elska vorið. Það er eina ástæðan sem mér dettur í hug því annað í mínu lífi hefur ekki breyst undanfarið.

Að vísu fékk ég closure á ákveðið mál og ákveðna manneskju fyrir 2 vikum síðan. Gæti verið léttir vegna þess. Eitthvað sem er búið að hanga yfir mér í laaaangan tíma. Gott að geta lokað einhverjum kafla í sínu lífi og sagt við sjálfa sig að nú sé komið nóg. Að maður geti hvort sem ekki breytt hlutunum. Öllu hent í stóra reynslubankann og síðan horft fram á veginn. Á bjartari framtíð.

Annars er fólk endalaust að gefa mér ávexti þessa dagana. Ég skil ekkert í því. Mér finnst það ágætt. Mér finnst ávextir góðir. Þegar ég fór í kaffipásu á lessalnum í dag var búið að leggja ber á borðið mitt sem ég veit ekki hvað heita (ég skimaði yfir salinn og sá einn einstakling sem var með svona ber... svo ég gruna hann sterklega). Nú svo er einn kunningi minn endalust að gefa mér appelsínur eða banana eða.... Kannski einhver hint. "Guðný borðaðu hollt", "Guðný þú þarft að grenna þig". Æji ég sem er búin að vera svo dugleg í ræktinni undanfarið. Svona eins og ég er nú alltaf, ha. Skil ekki.Veit ekki.Vil ekki.

Jæja ekki mikið að gerast. Ávextir og closure. Nú og svo er ég að berjast við að senda út umsóknir um vinnur hérna í Aarhus. Ég er enn óviss með hvar í heiminum ég verð í sumar...hm...Danmörk er freistandi. Reykjavík líka. Þjóðgarðurinn er auk þess alltaf næs. Þetta kemur með kalda vatninu.

Og bæ ðe vei. Til hamingju með alþjóðlega kvennadaginn í gær. Ég veit ekki með ykkur en ég er kona og ég elska það.

posted by xxx @ 22:26