miðvikudagur, ágúst 17, 2005

Niðurpakk

..mér finnst svo leiðinlegt að pakka niður. Búin að sitja og stara í hálftíma því ég nenni ekki að byrja. Þetta er tvímælalaust það leiðinlegasta sem ég geri í mínu dagsdaglega lífi. Er samt með fiðrildi í maganum.

Listinn yfir allt sem ég ætla að gera og alla sem ég ætla að ná að hitta lengist og lengist. Ég er svo skipulagsglöð manneskja. Held að ég nái öllu sem ég ætla mér á þessum 9 dögum. Það skeit fugl á mig í dag svo ég er bjartsýn. Það er víst talið happamerki í Noregi þegar það gerist. Það sagði Liney kórkennari mér þegar ég var stödd úti í Flatey einhvern tímann í fyrndinni. Þar skitu 2 fuglar á mig. Man ekki hvort ég var óvenju heppin það sumar, en ég man heldur ekki eftir neinu verulega óheppilegu.

Æji best að sparka aðeins í rassinn á sér. Ég ætla að lána herbergið mitt aðeins meðan ég er á Ísl og þarf þess vegna að laga píííínu til, svo bara að klára að henda ofan í töskuskrattann svo ég geti eytt kvöldinu í eitthvað huggulegra en þess háttar rugl og leiðindi. Nú svo er það bara að kjassa eina kinn áður en ég hoppa í vinnuna í fyrramálið, hlaupa svo út á lestarstöð um 16 leytið og koma sér á Kastrup. Aldrei að vita nema Arnar taki á móti mér með einn kaldann þar en hann kemur aðeins fyrr um daginn frá Kef. Hlakka til að keyra frá kef flugvelli með Huldunni minni. Vona að Reykjavík taki á móti mér rigningarlaus. Hlakka til að hafa íslenskt hraun undir fótum mér.. Vííííííí...

posted by xxx @ 16:06