föstudagur, ágúst 19, 2005

Ísímísí

Góð lending í gær. Tókst samt að búa til hamfarir í hausnum á mér þegar Hulda var ekki komin hálftíma eftir að ég var lent. Var farin að halda að hún hefði gleymt mér eða lent í bílslysi (náði ekki í hana því hún hafði gleymt símanum sínum) og var farin að íhuga að stökkva upp í flybussinn. Flugvélin lenti nefnilega á undan áætlun, mér er illa við fríhafnir og þaut því á nótæm í gegnum hana. Þegar ég kom að færiböndunum stóð taskan mín við tærnar á mér svo biðin var engin. Orsakaði hins vegar mikla ringlureið í hausnum á mér, svona eins og gerist þegar ég á í hlut. Reykjavík tók á móti mér falleg og með bílslysi. Tvær ungar dömur keyrðu á BMWinn hans Styrmis þar sem við Hulda vorum farþegar. Gerðist slowmotion. Hressandi að fá smá innsýn í raunveruleikann. Ég er líka hress. Fíla mig vel hérna á Bollagötunni í þrælreymdu húsi.Íslenska símanúmerið mitt tók á móti mér með sms-um frá stalker sem ég eignaðist hérna síðasta sumar. Veit ekki alveg hvað ég á að gera við það. Undarlegt hversu auðvelt er að búa til lítinn heim inni í þessum stóra heimi. Lítinn heim sem á sér engar stoðir í þeim stóra. Jæja....... Svo er að skella sér út að hitta mann og annan.... upplifa verðsjokkið.
Ísland í öllu sínu veldi.

posted by xxx @ 11:58