sunnudagur, október 03, 2004

Dúfurnar

Íbúðin er draumur, Silla og Guðný algjörar dúfur. Það sama get ég sagt um dúfurnar sem baða sig í vatnsrennunni fyrir ofan eldhúsgluggann okkar og engispretturnar sem slá saman löppunum í bakgarðinum okkar. Allur tíminn minn fer í andlega sjálfsskoðun. Stundum finnst mér ég vera að missa mig i henni ..... ótrúlegt hvað maður getur allt í einu vaknað upp með ótrúlegar efasemdir og klump í maganum, svona loksins þegar tíminn til að hugsa er nægur. Og efasemdir um hvað??? Allt. Sjálfið mitt.

Bíð spennt eftir klíníkinni og nenni engan veginn að lesa fyrir tímana sem ég er í þessa dagana. Algjör dauðyfli. Dreif hins vegar í að taka námskeið á vegum FADL (Forening af danske lægestuderende) svo ég geti nú nælt mér í vaktir á sjúkrahúsunum hérna í kring á næstu önnum þegar buddan er örðin svöng.

Ég verð í Reykjavík 19.-28. nóv. Hef aldrei átt langan tíma í RVK þar sem ekkert er planlagt og ég verð ekki í neinu tímaleysi. Kaffihúsin bíða eftir mér. Laugarvegurinn og Laugardalslaugin. .. og þið líka. Hlakka til að hitta alla sem ég hef ekki hitt í óóótrúlega langan tíma. Langt síðan ég hef átt fleiri en 2 daga í Reykjavíkinni. Jeijjj!

posted by xxx @ 18:16