mánudagur, október 11, 2004

Múslímar og depurð

Helgin fór í námskeiðið sem ég er að taka. Föstudagskvöldið var mjög huggulegt en við Guðný, Eva og Tinna elduðum saman chicken korma og drukkum rauðvín með. Mikið súkkulaði og stelpusnakk. Ætlaðum að horfa á DVD saman í rúminu hennar Sillu en ég dúndraðist út af eftir 5mínútur. Á laugardagskvöldið ætlaði ég mér í mat og party hjá Astrid sem var með mér í hojskolen en ekkert varð úr því. Eyddi kvöldinu yfir sjónvarpinu pirruð og leiðinleg. Sorglegt það kvöld en svona dagar koma víst inn á milli. Á sunnudeginum skelltum vid Anna okkur (sænsk skutla sem er með mér á fadl námskeiðinu) á kynningu hjá múslímunum hérna í Aarhus. En það er moska á Nörre Alle sem er algjörlega ósýnileg þangað til komið er inn í hana. Danskt íbúðarhús að utan. Moska að innan. Gæddum okkur á tyrkneskum mat og ræddum um heima og geima við 3 stelpur á okkar aldri. Mjög trúaðar. Áður en ég vissi af höfðum við setið hjá þeim í 2 tíma.Fróðlegt en aldrei verð ég múslími. Ég átti að mæta í 2 fyrirlestra í morgun en kom mér ekki á fætur. Þessi önn er ekki að leggjast nógu vel í mig. Var með dúndrandi samviskubit í allan dag og einhver leiði í mér. Ég veit ekkert hvað er að gerast inni í hausnum á mér. Er ekki mönnum sinnandi. Fyrir hálftíma var bankað á dyrnar hjá mér og þar stóð maður með fangið fullt af rósum. ...TIL MÍN! Krissi sendi mér stóran rósavönd með vonum að næstu dagar hjá mér yrðu betri. Stundum finnst mér ég heppnasta manneskja í heimi.

posted by xxx @ 17:21