þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Ekki er það skólinn

Já mikið að gera. Og ekki er það skólinn (er nú samt að rústa honum líka.. þarf nú ekki mikið til á þessari 3.önn). Heldur djammið... og allt sem snýst að því. Ekki eins og ég sé að djamma fim ,fös og lau. Nei nei, tek eitt kvöld og er þunn í viku. Og þunn í allri sinni merkingu. Ræð hreinlega ekki við alla þessa bjóra sem þessir bjévítans danir og svíar torga eins og ekkert sé. Kannski er ástæðan sú að ég er helmingi minni en allir hinir..... og kannski aðeins klikkaðri í hausnum. Það klikkuð að ég rata ekki í bæinn eftir örfáa bjóra. Man ekki hvernig miðbær Aarhusa lítur út lengur... og þó... Ég bý þar. Og hvað varð um Guðnýju með stálviljann? Guðnýju sem sat í VAB kl 22 á föstudagskvöldum og fannst það hinn sjálfsagðasti hlutur. Gott mál. Guðný gáfaða. Nei ekki lengur. Hlakka til að dusta rykið af stálinu eftir jól þegar 4.önn byrjar. Hlakka til að finna ekki þennan óróleika í mér á miðvikudegi þegar þynnkunni er að létta og farið að glitta í annað djamm. Mætt á fredagsbarinn kl 15 á föstudegi meira en tilbúin að staupa við alla stóru krakkana og láta drekka mig undir borðið. Fredagsbarir eru verk djöfulsins þegar litlir íslendingar eins og ég kunna ekki að hygge sig með öl...

posted by xxx @ 16:55